Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Samúel Karl Ólason skrifar 12. desember 2025 15:28 Nokkrar af nýjum myndunum úr einkasafni Epsteins. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþing Demókratar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hafa birt nítján nýjar myndir úr dánarbúi barnaníðingsins Jeffreys Epstein. Á myndunum eru nokkrir auðugir, þekktir og áhrifamiklir menn eins og Donald Trump, Bill Clinton, Bill Gates, Richard Branson, Woody Allen og Steve Bannon.
Nokkrar myndir sýna kynlífstól og Trump-smokka. Vert er að taka fram að myndirnar sýna ekkert glæpsamlegt athæfi og ekki liggur fyrir hvenær þær voru teknar. Að minnsta kosti ein mynd er úr safni Getty og virðist ekki koma Epstein við. Hún sýnir Bill Gates og Andrew Mountbatten-Windsor, áður Andrés Bretaprins, og var tekin af blaðaljósmyndara á ráðstefnu í Lundúnum 2018. Karl konungur hefur verið klipptur úr myndinni. Myndirnar eru hluti af um 95 þúsund myndum í heild sem eru í vörslu dánarbúsins og voru nýverið afhentar nefndinni. Demókratar segja að fleiri myndir verði birtar á næstunni. 🚨 BREAKING: Oversight Dems received 95,000 new photos from Jeffrey Epstein's estate. These disturbing images raise even more questions about Epstein and his relationships with some of the most powerful men in the world.Time to end this White House cover-up. Release the files! pic.twitter.com/nQNIywayb9— Oversight Dems (@OversightDems) December 12, 2025 Repúblikanar í nefndinni hafa gagnrýnt Demókrata fyrir að handvelja myndir úr safninu til að reyna að koma höggi á Donald Trump. Ekkert bendi til þess að Trump hafi brotið af sér með nokkrum hætti í tengslum við Epstein. Sjá einnig: Birtu áður óséðar myndir af einkaeyju Epsteins Þeir saka Demókrata um að nýta sér þjáningu fórnarlamba Epsteins í pólitískum tilgangi. Ný lög skilyrða dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna til að opinbera fjölda gagna um mál Epstein í næstu viku. Lögin sem um ræðir snúa að skjölum sem dómsmálaráðuneytið hefur aflað í tengslum við rannsóknir í garð Jeffreys Epstein og annarra sem honum tengjast í gegnum árin. Það á við um rannsóknina þegar hann var handtekinn 2019 en gögnin ættu meðal annars að varpa ljósi á samkomulag sem Epstein gerði við saksóknara í Flórída á árum áður og rannsóknirnar sem bæði lögreglan í Flórída og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) gerðu þá. Ráðuneytið á að opinbera gögnin fyrir 19. desember. Fréttin hefur verið uppfærð. Hér má sjá Jeffrey Epstein með óþekktum manni og auðjöfrinum Richard Branson. Hér má sjá Larry Summers, fyrrverandi skólastjóra Harvard og Elisu New eiginkonu hans. Svo kallaðir „Trump-smokkar“. Ekki liggur fyrir hvenær þessi mynd var tekin né við hvaða tilefni. Sjálfa af Epstein og Steve Bannon, áhrifamiklum manni á hægri væng bandarískra stjórnmála og ráðgjafa Trumps til langs tíma. Leiðbeiningar um hvernig nota eigin sérstakan múl. Woody Allen og Jeffrey Epstein. Donald Trump, Epstein og óþekkt kona í samkvæmi. Trump og Epstein voru vinir á árum áður. Trump hefur áður sagt að hann hafi slitið tengsl sín við Epstein árið 2004. Óþekktur maður og Bill Gates, stofnandi Microsoft og einn auðugasti maður heims. Gates sagði í viðtali árið 2021 að hann hefði nokkrum sinnum snætt með Epstein á árum áður, í þeim tilgangi að reyna að afla peninga til góðgerðarmála. Það hafi verið mikil mistök. Bill Gates og Andrew Mountbatten-Windsor, áður Andrés Bretaprins. Þessi mynd var birt af Demókrötum og sögð koma úr safni Epsteins, en hún virðist koma úr safni Getty og var tekin á ráðstefnu í Lundúnum árið 2018. Myndin hefur verið klippt svo Karl konungur sést ekki á henni. Woody Allen og Steve Bannon. Kynlífshanski, einhverskonar. Mynd af Bill Gates, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, með þeim Ghislane Maxwell og Epstein. Maxwell var lengi aðstoðarkona Epsteins og var dæmd í fangelsi fyrir að útvega honum stúlkur til að brjóta á.Clinton virðist hafa áritað myndina en talsmaður hans hefur áður sagt að forsetinn fyrrverandi hafi nokkrum sinnum ferðast með einkaflugvél Epsteins og að hann hafi ekkert komið að glæpum níðingsins. Epstein og lögmaðurinn frægi Alan Dershowitz. Donald Trump í hópi kvenna. Allskonar kynlífstól. Steve Bannon og Epstein á fundi. Eppstein og Woody Allen. Myndir af myndum heima hjá Epstein. Mynd af Donald Trump og óþekktri konu.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Donald Trump Bill Clinton Tengdar fréttir Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Bandarískur alríkisdómari hefur heimilað dómsmálaráðuneytinu að opinbera gögn frá störfum ákærudómstóls sem skoðaði vísbendingar og sönnunargögn gegn barnaníðingnum Jeffrey Epstein árið 2019. Í gær komst annar dómari að sambærilegri niðurstöðu um gögn úr rannsókn gegn Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og kærustu Epsteins. 10. desember 2025 16:44 Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Bandarískur alríkisdómari heimilaði í dag dómsmálaráðuneytinu að opinbera gögn úr rannsókn ákærudómstóls sem beindust að Ghislaine Maxwell. Ákvörðunin gæti leitt til birtingar mikils magns áður óséðra gagna í Epstein-málinu. 9. desember 2025 16:27 Kallar Greene heimskan svikara Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er verulega ósáttur við stjórnendur fréttaskýrendaþáttarins 60 mínútna, fréttakonuna Lesley Stahl og eigendur Paramount. Hann virðist þó sérstaklega ósáttur við Marjorie Taylor Greene, fráfarandi þingkonu Repúblikanaflokksins og fyrrverandi stuðningsmann sinn, og kallar hana heimskan svikara í nýrri færslu á samfélagsmiðlum. 8. desember 2025 16:21 Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Sjá meira
Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Bandarískur alríkisdómari hefur heimilað dómsmálaráðuneytinu að opinbera gögn frá störfum ákærudómstóls sem skoðaði vísbendingar og sönnunargögn gegn barnaníðingnum Jeffrey Epstein árið 2019. Í gær komst annar dómari að sambærilegri niðurstöðu um gögn úr rannsókn gegn Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og kærustu Epsteins. 10. desember 2025 16:44
Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Bandarískur alríkisdómari heimilaði í dag dómsmálaráðuneytinu að opinbera gögn úr rannsókn ákærudómstóls sem beindust að Ghislaine Maxwell. Ákvörðunin gæti leitt til birtingar mikils magns áður óséðra gagna í Epstein-málinu. 9. desember 2025 16:27
Kallar Greene heimskan svikara Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er verulega ósáttur við stjórnendur fréttaskýrendaþáttarins 60 mínútna, fréttakonuna Lesley Stahl og eigendur Paramount. Hann virðist þó sérstaklega ósáttur við Marjorie Taylor Greene, fráfarandi þingkonu Repúblikanaflokksins og fyrrverandi stuðningsmann sinn, og kallar hana heimskan svikara í nýrri færslu á samfélagsmiðlum. 8. desember 2025 16:21