Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Agnar Már Másson skrifar 12. desember 2025 10:18 Mynd úr safni. Björgunarsveitarmenn stika gönguleið. Mynd/JOK Slysavarnafélagið Landsbjörg lýsir áhyggjum af dvínandi fjarskiptaöryggi Íslendinga þar sem slökkt hefur verið á hluta 2G og 3G farsímasenda. Svæði sem áður voru vel tengd séu nú með öllu sambandslaus. Félagið skorar á stjórnvöld að leggjast með sér á árarnar og viðhalda talstöðvakerfi landsins.
Fulltrúaráðsfundur Slysavarnafélags Íslands var haldinn í Háskólanum í Reykjavík hinn 22. nóvember. Þar lýsti félagið þungum áhyggjum af fjarskiptaöryggi í dreifðari byggðum, nú þegar slökkt hefur verið á hluta 2G og 3G farsímasenda og fyrirhugað að slökkva á fleirum. Um áramótin mun 2G og 3G-farsímaþjónusta leggjast af hér á landi ferli þar að lútandi hefur staðið yfir síðan 2021. Samkvæmt Fjarskiptastofu á ákvörðunin ekki að hafa áhrif á útbreiðslu farnets. „Nú þegar er farið að bera á því að svæði sem áður voru í góðu sambandi, eru nú sambandslaus með öllu, eða með mun lakara samband en áður,“ segir í ályktun fulltrúaráðsins sem samþykkt var einróma á fundinum. Þar segir að mikilvægt sé að farsímakerfi landsins tryggi á hverjum tíma öryggi íbúa sem best verði á kosið. Fulltrúaráðið skorar á stjórnvöld að hafa forgöngu um að svo sé. „Þessi þróun sýnir jafnframt fram á mikilvægt öryggishlutverk VHF endurvarpakerfi [þ.e. metrabylgjukerfi] það sem Slysavarnafélagið Landsbjörg byggði upp og hefur viðhaldið á eigin kostnað. Þar sem ekki er Tetra samband, eða ef Tetra kerfið af einhverjum orsökum liggur niðri, er VHF kerfi félagsins eina kerfið þar sem töluð skilaboð komast um langan veg þegar hætta steðjar að,“ segir í ályktuninni. Það er því ósk Landsbjargar að hið opinbera leggist á árarnar með félaginu að reka og viðhalda þessum kerfi. Síminn hefur hafist handa við að slökkva á 2G sendum sínum en slökkt verður á hinum síðasta, sem er á Suðurlandi, þann 15. desember. Nova slökkti á 2G-sendum um síðustu áramót.
Fjarskipti Björgunarsveitir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira