Á fjórða hundrað gripa orðið fyrir vatnstjóni á Louvre Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 7. desember 2025 20:15 90 milljóna evra virði af skartgripum var rænt af safninu fyrr í vetur. AP Vatnstjón er sagt hafa orðið á mörghundruð gripum í egypskri álmu Louvre-safnsins í París eftir bilun í loftræstikerfinu, aðeins fáeinum vikum eftir stórtækt skartgriparán. Lekinn er sagður hafa orðið í lok nóvember.
Stjórnandi á safninu sem Guardian ræddi við segir á bilinu 300 til 400 gripi hafa orðið fyrir skemmdum af völdum lekans. Lán í óláni hafi verið að vatnið hafi hvergi komist nærri forngripum heldur lekið í gegnum loftið og inn í rými þar sem skrif Egyptalandsfræðinga og skjöl frá síðustu og þarsíðustu öld eru geymd. Gripirnir sem urðu fyrir tjóni segir Francis Steinbock hafa mikið notagildi en að þeir séu til í afritum. „Engir forngripir hafa orðið fyrir tjóni. Á þessum tímapunkti hefur enginn óafturkræfur skaði orðið á safneigninni,“ er haft eftir Francis. Louvre-safnið segist munu hrinda af stað innanhúsrannsókn á lekanum, sem kom til vegna bilunar í loftræstikerfi safnsins. Loki opnaðist fyrir slysni og vatn streymdi inn í gegnum loft Mollien-álmunnar þar sem skjölin voru geymd. Steinbock segir að skjölin sem urðu fyrir tjóni verði þerruð og þeim komið í hendur bókbindara til viðgerða. Síðan verði þeim komið fyrir í hillum Mollien-álmunnar á nýjan leik.
Frakkland Söfn Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira