Biðsalur dauðans eða aftökustaður á heiði? Davíð Bergmann skrifar 7. desember 2025 17:02 „Hvað á að gera við afa og ömmu? Skjóta þau!“ Þetta hljómar eins og grimmilegur brandari, beint upp úr gömlum skets hjá Fóstbræðrum þar sem fjölskylda tekur lýðræðislega ákvörðun um hvað sé best að gera við gamla manninn sem er runninn út af dagsetningu. En þegar maður horfir á íslenska heilbrigðiskerfið í dag læðist sú hugsun að manni hvort það væri ekki hreinlega mannúðlegra að fara með þau upp á heiði og binda enda á þetta, frekar en að dæma þau til lífstíðarvistar í biðsal dauðans. Ég er ekki að grínast. Þetta er veruleikinn sem við bjóðum okkar fólki upp á. Móðir mín, sem verður 85 ára í sumar, hefur dúsað á biðplássi á Vífilsstöðum og Landakoti, svo mánuðum saman. Hvers vegna? Jú, vegna þess að „færni- og heilbrigðisnefnd“ hefur ekki séð sér fært að stimpla hana inn í lífið á ný. Á meðan nefndin flettir pappírum hefur þessi gamla kona ekki fengið að fara í bað í þrjár vikur. Þrjár vikur. Ástæðan? Eitthvað skráningarklúður í kerfinu. Þarna situr hún, horfir á hvíta veggi og deilir herbergi með fárveiku fólki þar sem aðeins dregið tjald skilur á milli lífs og dauða. Þar á hún að bíða, stundum í eigin óhreinindum, á meðan lífslöngunin fjarar út. Hver myndi bjóða sjálfum sér það að fara í bað einu sinni í viku? Samt er það lúxusinn sem við skömmtum þeim sem byggðu þetta land. Pabbi minn átti sömu sögu. Hann brotnaði ítrekað heima, lagðist inn, fór út, og brotnaði aftur. Hann var með annan fótinn styttri í 16 ár, en kerfið krafðist þess samt á fimm ára fresti að hann sannaði að það hefði ekki vaxið á hann nýr fótur fyrir kraftaverk. Svona virkar þetta: Kerfið er ekki til fyrir fólkið, heldur fyrir „kerfisfólkið“ sem gætir hagsmuna sinna innan veggja þess. Pabbi fékk loksins pláss á hjúkrunarheimili mánuði áður en hann varð 91 árs á Akranesi. Hann hafði búið í Kópavogi í 63 ár og unnið fyrir bæinn í þrjá áratugi, en hann dó sem útlendingur uppi á Skaga tveimur vikum síðar. Hann skilaði sínu, borgaði skattana sína og átti húsið sitt skuldlaust, en í staðinn fékk hann tveggja vikna útlegð á lokametrunum. Maður fær það á tilfinninguna að stjórnvöld óski þess hreinlega að þetta fólk væri úr sögunni. Metnaðurinn í málaflokknum er nákvæmlega enginn. Ef það væri sami metnaður gagnvart okkar fólki og við leggjum í stríð erlendis væri staðan önnur. Við dælum milljörðum í hít eins og stríðið í Úkraínu á meðan við getum ekki tryggt öldruðum mannsæmandi þjónustu. Til að varpa ljósi á tilgangsleysi þessara upphæða, þá duga heildarframlög Íslands til Úkraínu ekki einu sinni til að reka stoðkerfi landsins í einn dag. Á sama tíma hafa Bandaríkin dælt 8.570 milljörðum króna í stríðið bara í hernaðaraðstoð, og tæpum 30.000 milljörðum í vopn til Ísraels frá því seinna stríðinu lauk. Hér á Íslandi horfum við upp á stjórnvöld sem forgangsraða þessum blóðugu hagsmunum fram yfir líf okkar besta fólks. Einn milljarður aukalega í þennan málaflokk hér heima er nákvæmlega ekki neitt í þessu samhengi – en hann myndi breyta öllu fyrir þá sem nú bíða í óhreinindum sínum. Ef það yrði fundinn opinber aftökustaður fyrir fólk sem er „runnið út á dagsetningu“ myndi það líklega spara kerfinu mikinn pening. Það lítur bara betur út siðferðislega að láta þau drepast úr leiðindum í biðsalnum. Við ættum að minnsta kosti að leyfa dánaraðstoð, því við getum ekki drullast til að sinna þeim sem verðskulda áhyggjulaust ævikvöld. Og þetta á ekki bara við um hina eldri. Við erum líka að týna ungmennunum okkar. Árið 2011 var reiknað út að hvert andlát ungs manns vegna ofneyslu kostaði samfélagið 800 milljónir króna. Síðan í mars 2023 hef ég fylgt tveimur fyrrverandi nemendum mínum til grafar, en á þessu sama tímabili hafa alls sex ungmenni undir 21 árs aldri dáið vegna ofneyslu eða sjálfsvíga. Lögreglan segir okkur að við séum á sama stað og hin Norðurlöndin í skipulagðri glæpastarfsemi. Samfélagið er að rotna á báðum endum. Skrúfum fyrir fjárstrauminn í vonlausa vígvelli og gagnslausa hít erlendis. Hættum að kaupa vopn á meðan við getum ekki keypt alvöru þjónustu og mannúðlega umönnun fyrir okkar fólk. Setjum peningana þar sem þeir nýtast fólkinu. Því ef við getum ekki hugsað um okkar nánustu, hvers vegna í ósköpunum erum við þá að verja öllum þessum milljörðum í vígvöll sem er blóði drifinn og mun engu skila nema dauða og þjáningu? Höfundur er áhugamaður um betra samfélag og Miðflokksmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar