Földu stórfellt magn fíkniefna í alls konar leynihólfum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 3. desember 2025 19:10 Tollgæslan fann 9 lítra af kókaínvökva við kyrfilega leit í þessum bíl. Páll Svansson aðstoðaryfirtollvörður segir að embættið leggi hald á sífellt meira magn fíkniefna. Vísir/Vilhelm Fjórir erlendir ríkisborgarar hafa verið handteknir vegna stórfellds fíkniefnainnflutnings í tveimur aðskildum málum í tengslum við komu Norrænu til Seyðisfjarðar. Það tók tollgæslu marga klukkutíma að finna efnin sem voru kyrfilega falin í bílum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að samfélagið verði að staldra við og spyrja sig af hverju eftirspurnin eftir fíkniefnum sé svona mikil.
Við sögðum frá því í síðustu viku að toll- og löggæsla hefðu aldrei lagt hald á annað eins magn fíkniefna með Norrænu á Seyðisfirði og í ár. Alls hafa fimm stórfelld mál komið þar upp í ár og tvö þeirra, í síðasta mánuði. Í öðru þeirra var lagt hald á 53 kíló af hassi og í hinu níu lítra af kókaínvökva. Efnin voru kyrfilega falin í alls konar leynihólfum í tveimur bílum. Það tók tollgæslu marga klukkutíma að finna efnin og þurfti að búta bílana niður. Alls fundust 40 kíló af hassi inn af þessu tilbúna hólfi á bíl. Vísir/Vilhelm Páll Svansson aðstoðaryfirtollvörður segir um tvö aðskilin mál að ræða, einn hafi verið handtekinn í öðru þeirra og þrír í hinu. Mennirnir eru allir erlendir ríkisborgarar og virðast ekki hafa nein tengsl við Ísland. Þeir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því málin komu upp, en það rennur út í þarnæstu viku. Páll segir bæði málin afrakstur mjög góðrar samvinnu lögregluliða á höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi og Tollgæslunnar. Embættin hafi jafnframt notið aðstoðar lögreglunnar á Norðurlandi eystra og sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðir í fyrrnefndum málum. „Það á enn eftir að dæma í þessum málum,“ segir Páll. Sögulegt magn ketamíns Páll bendir einnig á þriðja málið sem kom upp á árinu í tengslum við komu Norrænu þar sem met var slegið. „Við fundum sögulegt magn af ketamíni í bíl í september sem var að koma úr Norrænu eða fimmtán kíló, það er þrisvar sinnum meira en stærsti fundur okkar fram að því. Þá fundum við fimm kíló af MDMA í sama bíl. Hólfin fyrir efnin voru vel tæknilega vel útfærð í bílnum,“ segir Páll. Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinuVísir/Vilhelm Aldrei fleiri stórfelld mál Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að aldrei hafi jafn mörg stórfelld mál komið upp á landinu sem tengjast fíkniefnainnflutningi. „Það er alls staðar aukning á haldlögðum fíkniefnum, hjá okkur, á Keflavíkurflugvelli og í tengslum við komu Norrænu,“ segir Pálmi. Hann segir að helsta efnið sem nú sé lagt hald á sé kókaín en líka önnur efni. Ævar segir að góð samvinna milli lög- og tollgæslu hafi skilað góðum árangri en fleira komi til. „Við erum líka að velta fyrir okkur þessu gríðarlega framboði. Það hlýtur að þýða að hér sé mikil eftirspurn. Samfélagið þarf að spyrja sig af hverju eftirspurnin eftir hörðum og dýrum fíkniefnum er svona mikil. Þetta eru gríðarlega hættuleg efni og neysla á þeim hefur afar miklar afleiðingar fyrir þá sem neyta þeirra og samfélagið í heild,“ segir Ævar.
Lögreglumál Tollgæslan Fíkniefnabrot Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira