Bíða með að skipa lögreglustjóra á Suðurnesjum á meðan nýs ríkislögreglustjóra er leitað Kjartan Kjartansson skrifar 2. desember 2025 14:28 Ákveðið var að fresta því að skipa lögreglustjóra á Suðurnesjum á meðan leitað er að eftirmanni Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur (t.v.) sem sagði óvænt af sér sem ríkislögreglustjóri í síðasta mánuði. Vísir Dómsmálaráðuneytið gerði hlé á umsóknarferli vegna embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum á meðan leit að nýjum ríkislögreglustjóra stendur yfir. Þrír mánuðir eru frá því að staðan á Suðurnesjum var auglýst.
Ekkert hefur frést af skipun lögreglustjóra á Suðurnesjum frá því að listi yfir umsækjendur var birtur um miðjan október. Dómsmálaráðuneytið staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að umsóknarferlinu hafi verið frestað á meðan umsóknarferli vegna skipunar ríkislögreglustjóra stendur yfir. Umsækjendur um embættið á Suðurnesjum hafi verið upplýstir um stöðuna. Sigríður Björk Guðjónsdóttir sagði skyndilega af sér sem ríkislögreglustjóri í kjölfar umfjöllunar um viðskipti embættis hennar við ráðgjafarfyrirtæki. Staðan hefur ekki verið auglýst til umsóknar ennþá. Embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum losnaði þegar Úlfar Lúðvíksson sagði upp störfum í maí. Það gerði hann eftir að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, tjáði honum að embættið yrði auglýst í haust og samningur hans yrði ekki endurnýjaður. Sex manns sóttu um stöðu lögreglustjóra á Suðurnesjum sem til stóð að skipa í um mánaðamótin, þar á meðal Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, Alda Hrönn Jóhannsdóttir, staðgengill lögreglustjórans, og Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Lögreglan Greiðslur ríkislögreglustjóra til Intra Skipun ríkislögreglustjóra Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira