Þriðji framkvæmdastjórinn frá valdatöku Guðrúnar ráðinn Árni Sæberg skrifar 25. nóvember 2025 13:06 Talsverðar breytingar hafa orðið í Valhöll undanfarin misseri. Þá stendur til að selja sjálfa Valhöll og flytja höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins annað. Vísir/Sigurjón Björg Ásta Þórðardóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins en hún tók við í apríl síðastliðnum. Tryggvi Másson verður nýr framkvæmdastjóri, sá þriðji frá því að Guðrún Hafsteinsdóttir varð formaður flokksins.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum en Morgunblaðið greindi fyrst frá. Í tilkynningu segir að Björg Ásta hafi stigið til hliðar þar sem hún stefni á framboð í sveitarstjórnarkosningunum í vor í Vogum. Hún tók við störfum í Valhöll þann 4. apríl síðastliðinn og í fréttatilkynningu þess efnis á sínum tíma sagði að hún væri lögfræðingur með víðtæka reynslu af lögfræðistörfum, meðal annars sem yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins, lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda og fulltrúi hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur. Hún hefði einnig starfað hjá lögreglunni á Suðurnesjum og síðast sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, sem var þá Guðrún Hafsteinsdóttir. Tryggvi Másson er nýr framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Hún tók við af Þórði Þórarinssyni sem hafði gengt stöðu framkvæmdastjóra í ellefu ár. Hefur fengið mikla hvatningu „Undanfarnar vikur hef ég fengið mikla hvatningu til að bjóða mig fram í heimabæ mínum, Vogum, bæ sem ég brenn fyrir. Ég sé þar fjölmörg tækifæri til að efla þjónustu, treysta innviði og halda áfram að byggja upp sterkt og fjölskylduvænt samfélag. Til að geta undirbúið þá vegferð í góðu samtali við mitt fólk og mína sveitunga, tel ég ástæðu til að stíga til hliðar sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,“ er haft eftir Björgu Ástu. Hún þakki flokksmönnum öllum fyrir ánægjulegt samstarf og segist hlakka til að bjóða fram krafta sína fyrir flokkinn á vettvangi sveitarstjórnarstigsins. „Það hefur verið mér mikill heiður að starfa sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins með öflugum hópi sjálfstæðismanna um allt land Ég hef fulla trú á forystunni og því mikilvæga starfi sem framundan er. Þá vil ég óska nýjum framkvæmdastjóra flokksins alls hins besta og velfarnaðar í störfum.“ Hafði mikil áhrif á flokkinn Haft er eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins að Björg Ásta hafi lagt sterkt og sýnilegt mark á starf flokksins. „Björg Ásta hefur unnið afar mikilvægt starf fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún hefur lagt mikið af mörkum við að efla innra starf flokksins, stutt við kjörna fulltrúa, lagt grunn að kosningabaráttunni framundan og tekið á málum af yfirvegun. Ég er þakklát fyrir hennar framlag og gleðst yfir því að hún ætli nú að beita reynslunni heima í Vogum. Sjálfstæðisflokkurinn stendur og fellur með sterku fólki í sveitastjórnum um allt land. Ég veit að hún mun láta mikið til sín taka á þeim vettvangi og óska henni velfarnaðar í nýjum verkefnum.“ Tryggvi Másson var framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins á árunum 2022 til 2024 en hann kemur til flokksins frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Hann er varaþingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Fréttin hefur verið uppfærð.
Sjálfstæðisflokkurinn Vistaskipti Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira