Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. nóvember 2025 23:44 Það kom til átaka á ráðstefnunni. Epa Fjöldi mótmælenda fóru inn á loftslagsráðstefnuna COP30 sem er nú haldin í Brasilíu. Það kom til átaka á milli mótmælendanna og öryggisvarða, sem læstu ráðstefnugesti inni á meðan átökin stóðu.
Hundruð mótmælenda af frumbyggjaættum samkvæmt Reuters fylktust að ráðstefnunni og mættu þar öryggisvörðum. Fjöldi þeirra komst inn í bygginguna en öryggisverðirnir reyndu að nota borð til að stöðva hópinn. Öryggisverðirnir virtust hissa á fjöldanum og óundirbúnir fyrir slíkt. Þeir áttu erfitt með að loka dyrunum. Þúsundir fulltrúa frá löndum úti um allan heim koma nú saman á COP30, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þeirra á meðal eru fulltrúar frá Íslandi en ekki liggur fyrir hvort fulltrúar Íslands hafi verið viðstaddir mótmælin. Sjónarvottur segir að til einhverra átaka kom og sást einn öryggisvörður yfirgefa vettvang í hjólastól og annar með sár á andliti eftir að kylfa hæfði hann í andlitið. Fjöldi kom saman fyrir utan ráðstefnuna.EPA Mótmælendurnir yfirgáfu ráðstefnuna stuttu eftir að til átakanna kom. „Þau sem bera ábyrgð á loftslagsbreytingum og eyðileggingu regnskógarins, þau eru þarna inni og láta eins og þau séu að leysa vandann,“ segir Fred frá Juntas!-samtökunum í samtali við danska ríkisútvarpið. Agnete Finnemann Scheel, fréttaritari DR, er á vettvangi og segir ráðstefnugesti hafa verið læsta inni í húsinu á meðan mótmælin stóðu. Hún segir að um söguleg mótmæli sé að ræða.
Brasilía Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna (COP) Loftslagsmál Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Fleiri fréttir Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Sjá meira