Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Valur Páll Eiríksson skrifar 30. október 2025 11:30 Nallo var niðurbrotinn er hann gekk af velli í gær. Dan Istitene/Getty Images Það hefur ekki blásið byrlega hjá hinum 18 ára gamla Amara Nallo í fyrstu leikjum hans fyrir aðallið Liverpool. Hann fékk annað tækifæri sitt með liðinu í gærkvöld og var vísað af velli – í annað sinn.
Nallo spilaði annan leik sinn fyrir Liverpool í gærkvöld þegar hann kom inn á sem varamaður í strembinni stöðu. Liðið var 2-0 undir gegn Crystal Palace á Anfield. Arne Slot gerði tíu breytingar á liði Liverpool frá 3-2 tapi fyrir Brentford um helgina og aðallið félagsins fékk að stærstum hluta hvíld. Calvin Ramsey, Trey Nyoni, Kieran Morrison og Rio Ngumoha fengu tækifæri í byrjunarliðinu og fjórir unglingar komu inn af bekknum; Kaide Gordon, Wellity Lucky, Trent Kone-Doherty og áðurnefndur Amara Nallo. Nallo kom inn af bekknum á 67. mínútu og tólf mínútum síðar var honum vísað af velli fyrir að tosa niður Justin Devenney sem var sloppinn í gegn. Réttilega fékk hann rautt spjald að launum og vísað í sturtu. Nallo virtist niðurbrotinn og hefur eflaust vottað fyrir slæmum endurminningum. Hann entist enn skemur á vellinum í eina leiknum sem hann hafði spilað með Liverpool-liðinu fyrir gærkvöldið. Hann fékk tækifæri gegn PSV Eindhoven í Meistaradeildinni í janúar síðastliðnum. Nallo hafði verið á vellinum í um fjórar mínútur þegar hann fékk reisupassann í Hollandi í janúar.EYE4images/NurPhoto via Getty Images Aðeins fjórum mínútum síðar var honum vísað af velli, einnig fyrir að brjóta af sér sem aftasti varnarmaður. Nallo fór niðurbrotinn af velli í gær og fóru stuðningsmenn Liverpool einnig grautfúlir heim á leið eftir 3-0 tap fyrir Crystal Palace sem fer áfram í næstu umferð deildabikarsins. Um er að ræða sjötta tap Liverpool í síðustu sjö leikjum og jafnframt þriðja tap liðsins fyrir Crystal Palace á þessari leiktíð.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira