Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sindri Sverrisson skrifar 26. október 2025 22:30 Heimir Guðjónsson og Björn Daníel Sverrisson hafa ritað nöfn sín stóru letri í sögu FH. Skjáskot/Sýn Sport Heimir Guðjónsson og Björn Daníel Sverrisson, svo sannarlega goðsagnir í fótboltasögu FH, fluttu hvor um sig kveðjuræðu eftir að tíma þeirra hjá FH lauk í gær. Heimir talaði mögulega svolítið af sér í sinni ræðu.
Ræðurnar má sjá hér að neðan en þeim Heimi og Birni var ákaft fagnað. Heimir talaði um hve stemningin hjá stuðningsmönnum hefði verið sérstaklega góð í sumar og rifjaði upp þegar þeim Dean Martin, aðstoðarþjálfara ÍA, lenti saman í Kaplakrika í ágúst. Báðir fengu rautt spjald en Heimir sagðist þá – og viðurkenndi að hann ætti nú líklega ekki að ljóstra því upp – reyndar hafa falið sig og haldið hálfleiksræðuna fyrir sína menn engu að síður. Hún virðist hafa virkað því FH var 2-1 undir og vann mikilvægan 3-2 sigur. Heimir sat svo hjá vallarþulnum Friðriki Dór í seinni hálfleik, horfði niður í stúkuna og hugsaði með sér að stemningin minnti á gömlu góðu tímana. Björn Daníel þakkaði kærlega fyrir sig og sagðist sérstaklega þakklátur fyrir að þurfa ekki aftur að taka „þæfingar“ á hverjum einasta degi, undir stjórn Heimis. „Ég er hættur að hlaupa,“ sagði Björn Daníel léttur en hér að neðan má sjá ræðuna hans. Heimir er sagður vera að taka við Lengjudeildarliði Fylkis sem mun kynna sinn nýja þjálfara til leiks klukkan 17 á morgun. Björn Daníel ætlar að snúa sér að þjálfun og hefur verið sagður ætla að taka við Sindra á Hornafirði.
Besta deild karla FH Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira