Samstöðin tapaði fimmtíu milljónum Árni Sæberg skrifar 23. október 2025 13:40 Gunnar Smári Egilsson er ritstjóri Samstöðvarinnar. Vísir/Anton Brink Samstöðin ehf., sem rekur fjölmiðil undir sama heiti, tapaði fimmtíu milljónum króna í fyrra, samanborið við 24 milljóna króna tap árið áður. Samstöðin hlaut fjölmiðlastyrk í fyrra en ekki árið áður.
Þetta kemur fram í ársreikningi Samstöðvarinnar fyrir árið 2024, annað heila rekstrarár félagsins. Þar segir að tekjur félagsins hafi numið 14,2 milljónum króna í fyrra, samanborið við 11,2 milljóna króna tekjur árið áður. Aftur á móti námu rekstrargjöld 64,6 milljónum króna, samanborið við 35,3 milljóna króna kostnað árið áður. Handbært fé minnkaði verulega Þá segir að eignir félagsins í árslok í fyrra hafi numið 3,5 milljónum króna en skuldir 86,8 milljónum. Þannig var eigið fé félagsins neikvætt um 83,29 milljónir króna. Þegar Vísir greindi í fyrra frá þungum róðri Samstöðvarinnar árið 2023 sagði Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, á Facebook að 24 milljóna króna tap gæfi skakka mynd af rekstri félagsins. Nærtækara hefði verið að líta á sjóðstreymi félagsins, sem sýndi að handbært fé hefði aukist um 4,3 milljónir króna árið 2023. Í árslok árið 2023 nam það 5,5 milljónum króna en í árslok árið 2024 nam það 477 þúsund krónum. Rúmar sex milljónir í styrk Á vef Samstöðvarinnar segir að Samstöðin sé fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar séu allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Þá segir að Alþýðufélagið sé eigandi Samstöðvarinnar. Félagið hafi það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geti gengið í Alþýðufélagið með því að skrá sig fyrir áskrift að Samstöðinni. Félagsgjöld í Alþýðufélagið séu 2.500 krónur á mánuði og renni óskipt til dagskrár og útsendinga Samstöðvarinnar. Þau sem vilji, geti borgað tvöfalda eða fjórfalda áskrift. Alþýðufélagið var ekki ein þeirra 25 fjölmiðlaveitna sem hlutu rekstrarstuðning árið 2023 en árið 2024 hlaut félagið 6,4 milljónir króna í rekstrarstuðning.
Fjölmiðlar Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Vill fjölga starfsfólki Samkeppniseftirlitsins um helming Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Sjá meira