Seldu fyrir 634 milljónir og græddu 182 Árni Sæberg skrifar 22. október 2025 10:50 Metta sport er til húsa að Barónsstíg 11a. Þar var steikhúsið Argentína rekið í fjölda ára. Vísir Metta sport seldi íþróttafatnað fyrir 634 milljónir króna og hagnaðist um 182 milljónir í fyrra. Félagið er í 80 prósenta eigu Péturs Kiernan og 20 prósenta eigu Samúels Ásberg O'Neill, sem báðir eru á þrítugsaldri.
Þetta kemur fram í nýjasta ársreikningi félagsins PS2 ehf., sem á Metta sport. Samkvæmt honum voru tekjur félagsins 633.860.103 krónur í fyrra, hagnaður fyrir vaxtagreiðslur og skatta, EBITDA, 216.465.546 krónur og afkoma ársins 181.516.777 krónur. Vexti félagsins undanfarin ár er ekki hægt að lýsa öðruvísi en að hann hafi verið ævintýralegur. Á fyrsta rekstrarárinu árið 2021 var afkoman ein milljón króna. Árið eftir var hún átján sinnum meiri og árið þar á eftir var hún 93 milljónir. Í fyrra var hún svo tvöföld miðað við árið áður. Í lok árs í fyrra námu eignir félagsins 288,9 milljónum króna. Eigið fé nam 182 milljónum og skuldir 106 milljónum. Stjórn félagsins leggur til að hluthöfunum tveimur verði greiddar tuttugu milljónir króna í arð vegna ársins 2024. Á vef Metta sport segir að það sé íslenskt lífstílsmerki sem einsetji sér að bæta daglegt líf fólks með hagkvæmum og vönduðum klæðnaði. Fyrirtækið hóf rekstur árið 2021 með vefverslun og verslun í Síðumúla, en er nú til húsa á Barónsstíg 11a.
Tíska og hönnun Uppgjör og ársreikningar Tengdar fréttir Með margra milljóna úr í sparnaðarherferð Háskólaneminn Pétur Kiernan er umsjónarmaður sjónvarpsþátta sem Landsbankinn lét framleiða um ungt fólk og sparnað. Hann lýsir sér sem námsmanni með lítið á milli handanna en skartar þó í þáttunum rándýru úri. 11. september 2019 06:15 Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Sjá meira
Með margra milljóna úr í sparnaðarherferð Háskólaneminn Pétur Kiernan er umsjónarmaður sjónvarpsþátta sem Landsbankinn lét framleiða um ungt fólk og sparnað. Hann lýsir sér sem námsmanni með lítið á milli handanna en skartar þó í þáttunum rándýru úri. 11. september 2019 06:15