Takk Sigurður Ingi Helgi Héðinsson skrifar 19. október 2025 08:00 Þegar leiðtogi tekur ákvörðun um að kveðja er ástæða til að staldra við, líta um öxl og þakka. Á nýafstöðnum miðstjórnarfundi Framsóknar gerði Sigurður Ingi grein fyrir ákvörðun sinni um að sækjast ekki eftir endurkjöri á komandi flokksþingi Framsóknar. Með ákvörðun sinni að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku hefur Sigurður Ingi Jóhannsson lokað merkum kafla í sögu Framsóknarflokksins og íslenskra stjórnmála. Hann gengur frá borði sem einn merkasti leiðtogi flokksins frá upphafi – á sama stalli og Ólafur Jóhannesson, Steingrímur Hermannsson, Halldór Ásgrímsson og Eysteinn Jónsson. Í anda þeirra allra hefur hann unnið af skynsemi, festu og hlýju – og markað djúp spor í íslenskt samfélag. Tímabil uppbyggingar og stöðugleika Undir forystu Sigurðar Inga lifði íslenskt samfélag einn öflugasta áratug í sögu landsins. Árin 2013 til 2024 má kalla „Framsóknaráratuginn“ – tímabil þar sem lífskjör þjóðarinnar styrktust meira en nokkru sinni fyrr í 81 árs sögu lýðveldisins. Íslenskt samfélag er á alla mælikvarða eitt það fremsta, ekki aðeins í Evrópu, eða á Norðurlöndum, heldur í heiminum öllum.Árangurinn er ekki tilviljun heldur afrakstur traustrar stjórnarstefnu sem byggir á samvinnu og ábyrgð. Framsókn leiddi fölmörg lykil verkefni sem tryggðu meiri jöfnuð, aukinn stöðugleika og traust til framtíðar. Það var einmitt þessi festuhefð flokksins sem Sigurður Ingi stóð vörð um – að Framsókn væri ekki flokkur skammtímahagsmuna heldur langtímasýnar, byggð á traustum grunni samfélagslegra gilda. Kletturinn í hafinu Sigurður Ingi hefur sýnt ótrúlega seiglu í mótlæti. Hann tók við forsætisráðuneytinu og flokknum á erfiðum tímum þegar margir höfðu afskrifað hann eftir afsögn Sigmundar Davíðs í kjölfar Wintris málsins. Á flokksþingi haustið 2016 var Sigurður Ingi kjörinn formaður. Á flokksþinginu kaus grasrót Framsóknar ekki aðeins um persónur, heldur um framtíð flokksins og hvaða leið hún vildi fara. Við þekkjum öll erfiðleikana og átökin sem þessu fylgdu. Með ró, vinnusemi og ósérhlífni tókst honum að sameina flokkinn að nýju á skömmum tíma, endurheimta traust þjóðarinnar og leiða hann til áhrifa og stórra sigra, ekki síst í kosningum til Alþingis haustið 2021 og í sveitarstjórnarkosningum 2022. Sigurður Ingi er leiðtogi sem lætur verkin tala. Ekki hávær leiðtogi, heldur stöðugur og traustur, ekki síst þegar á reynir. Áherslan á jöfnuð, ábyrgð og samvinnu – gildi sem eru hjarta Framsóknar. Formannstíð Sigurðar Inga spannar tæpan áratug. Það er langur tími í eldlínunni en kletturinn í hafinu hefur ekki látið öldurótið hagga sér, heldur gengur frá borði á eigin forsendum. Formaður samvinnunnar Sigurður Ingi hefur alltaf verið sannur samvinnumaður. Hann trúir því að pólitík eigi ekki að snúast um sundrungu, heldur samvinnu og trú á að með lausnamiðuðu samtali megi leysa flóknustu viðfangsefni samfélagsins. Byggja brýr á milli ólíkra sjónarmiða, milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins. Á krefjandi tímum tókst honum að halda saman ólíkum stjórnarflokkum og skapa þann pólitíska stöðugleika sem þjóðin þráði.Hann leitaði samtals, ekki átaka. Hann trúir á að tala við fólk – ekki yfir það. Hann treysti regluverki flokksins, stofnunum hans og grasrótinni. Þessi djúpa sannfæring hans – að styrkur Framsóknar spretti úr fólkinu sjálfu – er rauður þráður í allri hans leiðtogatíð. Framsóknaráratugurinn – arfleifð framtíðarsýnar Í ræðu sinni á miðstjórnarfundinum lýsti hann verkum flokksins með stolti: nýjar stoðir undir efnahag þjóðarinnar, fjölbreyttara atvinnulíf, sterkari velferðar- og heilbrigðiskerfi og sterkari landsbyggð. Hann minnti á að þegar Framsókn leiðir, þá dafni íslenskt samfélag.Hann dró fram skýra mynd af verkefnum framtíðarinnar – baráttunni við verðbólgu, nauðsyn róttækra umbóta á húsnæðismarkaði, og mikilvægi þess að tryggja jafna stöðu allra landsmanna óháð búsetu og efnahag. Hann talaði fyrir íslenskri leið, lausnum sem byggja á eigin styrk – ekki á afsali fullveldis eða innflutningi hugmyndafræði frá Brussel.Í ræðu sinni setti einnig fram sterk samfélagsleg markmið: að lengja fæðingarorlof, styðja barnafólk og halda áfram farsældarátakinu fyrir börnin og ungmennin okkar. Hann minnti á að engin þjóð geti byggt framtíð án þess að hlúa að börnunum – og engin þjóð standi sterk ef hún gleymir tungumáli sínu. Sterk rót, græn framtíð Sigurður Ingi tengdi verk sín og framtíðarsýn við söguna. Hann minnti á stjórnkænsku Steingríms, staðfestu Halldórs, stjórnþekkingu Ólafs og umhverfishugsjónir Eysteins. Þannig kallaði hann fram heildarmynd af Framsókn – sem flokki framfara, samvinnu og náttúruverndar.Hann benti á að flokkurinn eigi nú tækifæri til að endurheimta stöðu sína sem grænt afl skynseminnar, með áherslu á sjálfbærni, jafnvægi og heilbrigða nýtingu auðlinda þjóðarinnar. Þannig sé Framsókn í senn arftaki fortíðar og leiðarljós framtíðar. Þakklæti og arfleifð Þegar Sigurður Ingi nú kveður nú senn formennsku flokksins er það ekki endir heldur umbreyting. Tækifæri fyrir flokkinn til að kjósa sér nýja, ferska forystu til að leiða næsta Framsóknaráratug. Sigurður Ingi heldur áfram að starfa fyrir Framsókn og fyrir landið af sama eldmóði og áður. En með brotthvarfi hans frá forystu lýkur stórmerkilegri tíð og nýr kafli hefst í sögu Framsóknar.Við hugsum til leiðtoga sem skapaði stöðugleika, lyfti lífskjörum, styrkti trú á miðjunni og minnti okkur á að pólitík er ekki valdatafl – heldur þjónusta við fólkið í landinu. Takk Takk fyrir að hafa leitt okkur af heiðarleika og æðruleysi.Takk fyrir að hafa trúað á fólk, á samvinnu og á framtíð Íslands.Takk fyrir að hafa verið rödd skynseminnar þegar vindar blésu. Takk fyrir lærdómsríkt, kærleiksríkt og einstakt samstarf. Og takk fyrir að hafa kennt okkur að þau fræ sem við sáum í jarðveg samvinnunnar verða síðar að trjám sem skýla komandi kynslóðum. Framsókn stendur sterk, því rætur okkar eru djúpar – og verk Sigurðar Inga Jóhannssonar, eins helsta leiðtoga í sögu flokksins, og eins merkasta stjórnmálamanns aldarinnar, munu aldrei gleymast. Höfundur er framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Helgi Héðinsson Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun