Óttast um geðheilsu foreldra nái breytingarnar fram að ganga Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. október 2025 12:20 Svava Arnardóttir er ein þeirra sem skilað hefur inn umsögn til borgarinnar vegna málsins. Vísir Einstæð móðir segir ábyrgð á sprungnu leikskólakerfi vera velt yfir á foreldra með breytingum á gjaldskrá leikskóla í Reykjavík. Hún segist óttast um geðheilsu foreldra nái tillögurnar fram að ganga. Reykjavíkurborg kynnti í byrjun október miklar breytingar á gjaldskrá leikskóla og er málið nú í samráðsferli. Gert er ráð fyrir 25 prósenta afslætti sé barn sótt klukkan tvö eða fyrr á föstudögum og að maímánuður sé ókeypis séu skráningardagar ekki nýttir. Breytingunum er ætlað að tryggja fyrirsjáanleika í þjónustu. Greint var frá því á Vísi í dag að leikskólagjöld einstæðra foreldra gætu allt að þrefaldast. Ábyrgðinni velt yfir á foreldra Svava Arnardóttir er móðir sem eignaðist barn með gjafasæði, því með titilinn einstök móðir, og er ein þeirra sem skilað hefur inn umsögn til borgarinnar vegna málsins. „Eins og staðan er núna þá borga ég tæpar 25 þúsund krónur mánaðarlega fyrir vistun barnsins míns, sökum þess að ég er einstök móðir og eina foreldri barnsins þá fæ ég afslátt og það er gert ráð fyrir mér inni í kerfinu en ef tillögurnar ná fram að ganga mun ég verða rukkuð 66,774 krónur fyrir óbreytta vistun auk viðbótarkostnaðar fyrir skráningardaga og fæ ekki afslátt líkt og þau sem ná að hafa barnið meira heima,“ segir Svava í samtali við fréttastofu. Það sé um 167 prósent hækkun á einu bretti. Svava er að vinna fulla vinnu í miðborg Reykjavíkur og með barn í fullri vistun á leikskóla í Grafarvogi. „Þannig ég ver ómældum tíma í samgöngur á hverjum degi. Ég er um sjö mínútur að keyra barnið á leikskóla og svo um 25 að keyra til vinnustaðar, aðra leiðina. Ef ég er óheppin í umferðinni get ég verið allt að 40 mínútur, mest 50 mínútur að keyra að sækja. Þannig allur helsti sveigjanleiki vinnustaðarins og stytting vinnuviku hefur farið í það svigrúm að ná að sækja og skutla innan þessa tíma.“ Breytingarnar feli í sér að ábyrgð á sprungnu kerfi sé velt yfir á foreldra og segist Svava óttast um geðheilsu foreldra verði þær að veruleika. „Fólk mögulega neyðist til þess að sækja börnin fyrr og ljúka vinnudegi heima, jafnvel á kvöldin eftir að barnið fer að sofa og það er ekki hægt að reikna með að þetta sé endilega mikil gæðastund ef foreldrar eru að reyna að klára vinnudaginn heima og barnið jafnvel sett fyrir framan sjónvarp. Ég sé þetta einungis þannig að þetta eykur streitu í núverandi aðstæðum sem eru nú þegar ansi þungar fyrir mörg okkar.“ Umsögn Svövu í samráðsgátt borgarinnar: Ég er einstök móðir með takmarkað bakland. Að vera einstök móðir þýðir að ég valdi að eignast barn með gjafasæði, og barnið mitt á ekki annað foreldri. Barnið mitt á blessunarlega afa sem hefur stundum getað stokkið til og létt undir með mér, þar sem ég er í fullu starfi til að hafa í okkur og á. Í fyrirhuguðum tillögum sárvantar að gera taka tilliti til mismunandi aðstæðna og baklands barnanna. Einstætt foreldri gæti mögulega stytt vistun og sótt barn sitt fyrr aðra vikuna, og unnið upp skuldir hina vikuna þegar hitt foreldrið sinnir barnaumönnuninni. Að ónefndu mögulega tvöfalt stærra baklandi. En hvað um þá foreldra sem hafa ekki slíkan valkost? Barnið mitt er með 42.5 klst vistun. Ekki út af því að ég vilji ekki verja sem mestum tíma með því, heldur af nauðsyn. Ég er 7 mín að keyra barnið á leikskólann, og svo um 25 mín að keyra til vinnustaðar. Það er aðra leiðina. Ef ég er óheppin í umferðinni hef ég verið 40, mest 50 mín að keyra úr miðbænum upp í Grafarvog. Allur helsti sveigjanleiki vinnustaðar auk styttingu vinnuviku fer einfaldlega í svigrúmið til að ná að sækja og skutla. Ég er eina fyrirvinna heimilisins og sinni öllu sem þarf. Ég borga 24.858 kr mánaðarlega fyrir vistun barnsins míns. Ef tillögurnar ná fram að ganga mun ég vera rukkuð fyrir 66.774 kr, auk viðbótarkostnaðar fyrir skráningardaga og fæ ekki afslátt líkt og þau sem ná að hafa barnið meira heima. Þetta er 167% hækkun, á einu bretti. Þessar aðgerðir koma ekki vel út fyrir þau sem hafa minni sveigjanleika í starfi eða þurfa að vinna fulla vinnuviku til að hafa í sig og á. Hvað um foreldra með minna bakland eða ekki í parasambandi? Hvað um þau sem vinna ekki á sama blettinum og leikskóli og heimili, og sitja löngum stundum kófsveitt í umferðinni, með stressið í botni að reyna að sækja innan ákveðins tíma? Dæmið gengur bara ekki upp, en þessar tillögur mismuna sérstaklega þeim sem standa nú þegar höllum fæti. Við viljum öll að starfsumhverfi leikskólastarfsfólks laði að og haldi í færa starfskrafta sem hafa hugsjón og drifkraft fyrir vinnunni. Í þessum tillögum er kostnaðinum og ábyrgðinni á sprungnu kerfi er velt yfir á foreldra, með tilheyrandi auka álagi, áhyggjum og tímapressu. Ég hef miklar áhyggjur af geðheilsu foreldra nái þessar tillögur fram að ganga. Leikskólar Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Geðheilbrigði Tengdar fréttir Óttast áhrifin á vinnandi mæður Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir tillögur meirihlutans um breytingar á gjaldskrá leikskóla koma niður á ákveðnum hópum en borgarfulltrúi Vinstri grænna segir þær eiga eftir að fara í samráð. Tekist var á um tillögurnar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 5. október 2025 16:01 Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Aðstoðarleikskólastjóri í Reykjavík og foreldri barns á leikskóla lýsir mikilli þreytu meðal starfsmanna leikskóla vegna fáliðunar. Stanslaus símtöl til foreldra sem þurfi að sækja börnin sín fyrr og ekkert hafi batnað fyrr en farið var í fasta fáliðun á föstudegi. Þá loks hafi faglega starfið farið að blómstra. 3. október 2025 10:59 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira
Reykjavíkurborg kynnti í byrjun október miklar breytingar á gjaldskrá leikskóla og er málið nú í samráðsferli. Gert er ráð fyrir 25 prósenta afslætti sé barn sótt klukkan tvö eða fyrr á föstudögum og að maímánuður sé ókeypis séu skráningardagar ekki nýttir. Breytingunum er ætlað að tryggja fyrirsjáanleika í þjónustu. Greint var frá því á Vísi í dag að leikskólagjöld einstæðra foreldra gætu allt að þrefaldast. Ábyrgðinni velt yfir á foreldra Svava Arnardóttir er móðir sem eignaðist barn með gjafasæði, því með titilinn einstök móðir, og er ein þeirra sem skilað hefur inn umsögn til borgarinnar vegna málsins. „Eins og staðan er núna þá borga ég tæpar 25 þúsund krónur mánaðarlega fyrir vistun barnsins míns, sökum þess að ég er einstök móðir og eina foreldri barnsins þá fæ ég afslátt og það er gert ráð fyrir mér inni í kerfinu en ef tillögurnar ná fram að ganga mun ég verða rukkuð 66,774 krónur fyrir óbreytta vistun auk viðbótarkostnaðar fyrir skráningardaga og fæ ekki afslátt líkt og þau sem ná að hafa barnið meira heima,“ segir Svava í samtali við fréttastofu. Það sé um 167 prósent hækkun á einu bretti. Svava er að vinna fulla vinnu í miðborg Reykjavíkur og með barn í fullri vistun á leikskóla í Grafarvogi. „Þannig ég ver ómældum tíma í samgöngur á hverjum degi. Ég er um sjö mínútur að keyra barnið á leikskóla og svo um 25 að keyra til vinnustaðar, aðra leiðina. Ef ég er óheppin í umferðinni get ég verið allt að 40 mínútur, mest 50 mínútur að keyra að sækja. Þannig allur helsti sveigjanleiki vinnustaðarins og stytting vinnuviku hefur farið í það svigrúm að ná að sækja og skutla innan þessa tíma.“ Breytingarnar feli í sér að ábyrgð á sprungnu kerfi sé velt yfir á foreldra og segist Svava óttast um geðheilsu foreldra verði þær að veruleika. „Fólk mögulega neyðist til þess að sækja börnin fyrr og ljúka vinnudegi heima, jafnvel á kvöldin eftir að barnið fer að sofa og það er ekki hægt að reikna með að þetta sé endilega mikil gæðastund ef foreldrar eru að reyna að klára vinnudaginn heima og barnið jafnvel sett fyrir framan sjónvarp. Ég sé þetta einungis þannig að þetta eykur streitu í núverandi aðstæðum sem eru nú þegar ansi þungar fyrir mörg okkar.“ Umsögn Svövu í samráðsgátt borgarinnar: Ég er einstök móðir með takmarkað bakland. Að vera einstök móðir þýðir að ég valdi að eignast barn með gjafasæði, og barnið mitt á ekki annað foreldri. Barnið mitt á blessunarlega afa sem hefur stundum getað stokkið til og létt undir með mér, þar sem ég er í fullu starfi til að hafa í okkur og á. Í fyrirhuguðum tillögum sárvantar að gera taka tilliti til mismunandi aðstæðna og baklands barnanna. Einstætt foreldri gæti mögulega stytt vistun og sótt barn sitt fyrr aðra vikuna, og unnið upp skuldir hina vikuna þegar hitt foreldrið sinnir barnaumönnuninni. Að ónefndu mögulega tvöfalt stærra baklandi. En hvað um þá foreldra sem hafa ekki slíkan valkost? Barnið mitt er með 42.5 klst vistun. Ekki út af því að ég vilji ekki verja sem mestum tíma með því, heldur af nauðsyn. Ég er 7 mín að keyra barnið á leikskólann, og svo um 25 mín að keyra til vinnustaðar. Það er aðra leiðina. Ef ég er óheppin í umferðinni hef ég verið 40, mest 50 mín að keyra úr miðbænum upp í Grafarvog. Allur helsti sveigjanleiki vinnustaðar auk styttingu vinnuviku fer einfaldlega í svigrúmið til að ná að sækja og skutla. Ég er eina fyrirvinna heimilisins og sinni öllu sem þarf. Ég borga 24.858 kr mánaðarlega fyrir vistun barnsins míns. Ef tillögurnar ná fram að ganga mun ég vera rukkuð fyrir 66.774 kr, auk viðbótarkostnaðar fyrir skráningardaga og fæ ekki afslátt líkt og þau sem ná að hafa barnið meira heima. Þetta er 167% hækkun, á einu bretti. Þessar aðgerðir koma ekki vel út fyrir þau sem hafa minni sveigjanleika í starfi eða þurfa að vinna fulla vinnuviku til að hafa í sig og á. Hvað um foreldra með minna bakland eða ekki í parasambandi? Hvað um þau sem vinna ekki á sama blettinum og leikskóli og heimili, og sitja löngum stundum kófsveitt í umferðinni, með stressið í botni að reyna að sækja innan ákveðins tíma? Dæmið gengur bara ekki upp, en þessar tillögur mismuna sérstaklega þeim sem standa nú þegar höllum fæti. Við viljum öll að starfsumhverfi leikskólastarfsfólks laði að og haldi í færa starfskrafta sem hafa hugsjón og drifkraft fyrir vinnunni. Í þessum tillögum er kostnaðinum og ábyrgðinni á sprungnu kerfi er velt yfir á foreldra, með tilheyrandi auka álagi, áhyggjum og tímapressu. Ég hef miklar áhyggjur af geðheilsu foreldra nái þessar tillögur fram að ganga.
Umsögn Svövu í samráðsgátt borgarinnar: Ég er einstök móðir með takmarkað bakland. Að vera einstök móðir þýðir að ég valdi að eignast barn með gjafasæði, og barnið mitt á ekki annað foreldri. Barnið mitt á blessunarlega afa sem hefur stundum getað stokkið til og létt undir með mér, þar sem ég er í fullu starfi til að hafa í okkur og á. Í fyrirhuguðum tillögum sárvantar að gera taka tilliti til mismunandi aðstæðna og baklands barnanna. Einstætt foreldri gæti mögulega stytt vistun og sótt barn sitt fyrr aðra vikuna, og unnið upp skuldir hina vikuna þegar hitt foreldrið sinnir barnaumönnuninni. Að ónefndu mögulega tvöfalt stærra baklandi. En hvað um þá foreldra sem hafa ekki slíkan valkost? Barnið mitt er með 42.5 klst vistun. Ekki út af því að ég vilji ekki verja sem mestum tíma með því, heldur af nauðsyn. Ég er 7 mín að keyra barnið á leikskólann, og svo um 25 mín að keyra til vinnustaðar. Það er aðra leiðina. Ef ég er óheppin í umferðinni hef ég verið 40, mest 50 mín að keyra úr miðbænum upp í Grafarvog. Allur helsti sveigjanleiki vinnustaðar auk styttingu vinnuviku fer einfaldlega í svigrúmið til að ná að sækja og skutla. Ég er eina fyrirvinna heimilisins og sinni öllu sem þarf. Ég borga 24.858 kr mánaðarlega fyrir vistun barnsins míns. Ef tillögurnar ná fram að ganga mun ég vera rukkuð fyrir 66.774 kr, auk viðbótarkostnaðar fyrir skráningardaga og fæ ekki afslátt líkt og þau sem ná að hafa barnið meira heima. Þetta er 167% hækkun, á einu bretti. Þessar aðgerðir koma ekki vel út fyrir þau sem hafa minni sveigjanleika í starfi eða þurfa að vinna fulla vinnuviku til að hafa í sig og á. Hvað um foreldra með minna bakland eða ekki í parasambandi? Hvað um þau sem vinna ekki á sama blettinum og leikskóli og heimili, og sitja löngum stundum kófsveitt í umferðinni, með stressið í botni að reyna að sækja innan ákveðins tíma? Dæmið gengur bara ekki upp, en þessar tillögur mismuna sérstaklega þeim sem standa nú þegar höllum fæti. Við viljum öll að starfsumhverfi leikskólastarfsfólks laði að og haldi í færa starfskrafta sem hafa hugsjón og drifkraft fyrir vinnunni. Í þessum tillögum er kostnaðinum og ábyrgðinni á sprungnu kerfi er velt yfir á foreldra, með tilheyrandi auka álagi, áhyggjum og tímapressu. Ég hef miklar áhyggjur af geðheilsu foreldra nái þessar tillögur fram að ganga.
Leikskólar Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Geðheilbrigði Tengdar fréttir Óttast áhrifin á vinnandi mæður Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir tillögur meirihlutans um breytingar á gjaldskrá leikskóla koma niður á ákveðnum hópum en borgarfulltrúi Vinstri grænna segir þær eiga eftir að fara í samráð. Tekist var á um tillögurnar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 5. október 2025 16:01 Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Aðstoðarleikskólastjóri í Reykjavík og foreldri barns á leikskóla lýsir mikilli þreytu meðal starfsmanna leikskóla vegna fáliðunar. Stanslaus símtöl til foreldra sem þurfi að sækja börnin sín fyrr og ekkert hafi batnað fyrr en farið var í fasta fáliðun á föstudegi. Þá loks hafi faglega starfið farið að blómstra. 3. október 2025 10:59 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira
Óttast áhrifin á vinnandi mæður Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir tillögur meirihlutans um breytingar á gjaldskrá leikskóla koma niður á ákveðnum hópum en borgarfulltrúi Vinstri grænna segir þær eiga eftir að fara í samráð. Tekist var á um tillögurnar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 5. október 2025 16:01
Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Aðstoðarleikskólastjóri í Reykjavík og foreldri barns á leikskóla lýsir mikilli þreytu meðal starfsmanna leikskóla vegna fáliðunar. Stanslaus símtöl til foreldra sem þurfi að sækja börnin sín fyrr og ekkert hafi batnað fyrr en farið var í fasta fáliðun á föstudegi. Þá loks hafi faglega starfið farið að blómstra. 3. október 2025 10:59