Hvað svo? Trump segir næsta fasa friðaráætlunar hafinn Samúel Karl Ólason skrifar 13. október 2025 16:57 Fjölmargir þjóðarleiðtogar og erindrekar eru saman komnir í Egyptalandi til að ræða hvernig hægt sé að koma á friði til langs tíma. AP/Evan Vucci Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir annan fasa friðaráætlunarinnar varðandi Gasaströndina hafinn nú þegar búið sé að koma á vopnahléi á Gasa og Hamas-liðar sleppt gíslum þeirra. Bandarískir erindrekar hafa varað við því að annar fasinn sé flókinn og erfiður.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ísraelar og Hamas samþykkja vopnahlé og þau hafa hingað til ekki leitt til langvarandi friðar. Mikla vinnu þarf til að koma á friði til langs tíma Fyrsti fasinn fól í sér að koma á friði og að Hamas og Ísraelar skiptust á föngum. Þá þurftu ísraelskir hermenn að hörfa á Gasaströndinni, þó þeir hafi ekki yfirgefið svæðið alfarið. Í raun stjórna þeir enn um helmingi Gasastrandarinnar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ísraelar og Hamas-liðar samþykkja vopnahlé. Þau hafa hingað til ekki leitt til langvarandi friðar. Stórir hlutar Gasastrandarinnar eru í rúst og er ljóst að mikla uppbyggingu þarf þar. Ísraelar og Bandaríkjamenn vilja þar að auki að Hamas-liðar leggi niður vopn og komi með engum hætti að stjórnun svæðisins í framtíðinni. Annar fasi friðaráætlunarinnar á að snúast um það að koma á langvarandi friði og um endurbyggingu Gasastrandarinnar og framtíðarskipulag svæðisins. Ljóst er að mikil vinna er fyrir höndum og margt getur farið úrskeiðis. Það er meðal þess sem ráðamenn og erindrekar margra ríkja eru mættir til Egyptalands til að ræða. Netanjahú hætti við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, er ekki í Egyptalandi. Tilkynnt var í morgun að hann myndi mæta á fundinn en skömmu síðar sagðist hann ekki ætla að fara og vísaði til helgidags gyðinga sem hefst í kvöld. Við það vöknuðu margar spurningar um af hverju ekki. Fregnir frá Ísrael benda til þess að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi hringt í Abdel Fattah El-Sisi, forseta Egyptalands, og sagt að hann myndi snúa flugvél sinni við ef Netanjahú kæmi á fundinn. Donald Trump og Mahmoud Abbas, forseti heimastjórnar Palestínu, í Egyptalandi.AP/Evan Vucci Elta uppi meinta njósnara Hamas-liðar hafa sést víða um Gasaströndina í dag og þá sérstaklega í Gasaborg. Þar sem þeir hafa hert tökin aftur eftir að Ísraelar tóku stóra hluta borgarinnar. Myndir af Hamas-liðum á gangi um borgina hafa verið í dreifingu í dag og hafa borist fregnir af átökum milli þeirra og fylkinga sem vilja losna við Hamas. Þá hefur komið fram á samfélagsmiðlasíðum sem tengjast Hamas að vígamenn hafi leitað uppi „uppljóstrara“ og aðra sem sakaðir eru um að hafa starfað með Ísraelum. Einhverjir þeirra munu vera grunaðir um að hafa aðstoðað Ísraela við að ráða leiðtoga Hamas af dögum, samkvæmt frétt CNN. Ræða gæslulið og margt annað Friðartillögurnar sem kenndar eru við Trump og vopnahléssamkomulagið byggði á segja til um að mynda eigi sérstakt gæslulið sem á að þjálfa og starfa með palestínskum löggæslumönnum, með ráðgjöf frá Jórdaníu og Egyptalandi. Þetta gæslulið eigi að halda friðinn á Gasaströndinni. Þær segja einnig til um að Gasa eigi að gangast „af-hernaðarvæðingu“ og felur það í sér að Hamas-liðar eigi að leggja niður vopn. Það hafa leiðtogar samtakanna, sem hafa stjórnað Gasaströndinni frá 2007, ávallt þvertekið fyrir að gera. Leiðtogar samtakanna hafa þar að auki á undanförnum dögum ekkert gefið til kynna að þeim hafi snúist hugur. Þetta mun eflaust þurfa að ræða ítarlega í Egyptalandi. Utanríkisráðherra Egyptalands ræddi stöðuna við AP fréttaveituna í dag, þar sem hann fór meðal annars yfir hvað þyrfti að ræða í öðrum fasanum, eins og áðurnefnd gæslulið. Hann lofaði einnig Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, vegna aðkomu hans að vopnahléinu. Einnig verður líklega rætt um viðveru ísraelskra hermanna á Gasaströndinni. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum stjórna þeir nú um 53 prósentum landsvæðisins. Næst eiga þeir að hörfa enn lengra svo þeir stjórni um fjörutíu prósentum og svo fimmtán prósentum. Að endingu ættu Ísraelar að stjórna smáu svæði um Gasa sem mynda á einhvers konar „öryggissvæði“. Hve lengi það á að vera er óljóst í tillögunum og er orðalagið á þann veg að Ísraelar ættu að fá að ráða því. Þá eru tillögurnar mjög óljósar þegar kemur að palestínsku ríki og nefna eingöngu mögulega lausn að tveggja ríkja lausn en á mjög óljósan hátt. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur ítrekað sagt að stofnun slíks ríkis komi ekki til greina.
Egyptaland Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Donald Trump Bandaríkin Tengdar fréttir Hætt við atkvæðagreiðslu um þátttöku Ísraels í Eurovision Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hafa hætt við fyrirhugaða atkvæðagreiðslu um hvort Ísrael fái að taka þátt í Eurovision á næsta ári. Málið verði rætt á aðalfundi samtakanna í desember. 13. október 2025 16:20 Allir lifandi gíslarnir lausir úr prísund sinni Þeir tuttugu gíslar sem voru enn lifandi í haldi Hamas-samtakanna var sleppt og þeir afhentir Rauða krossinum í morgun. Þetta staðfestir Ísraelsher. Gert er ráð fyrir að líkum 28 gísla til viðbótar verði skilað síðar í dag. 13. október 2025 06:30 Flóðgáttir þurfi að opnast í Gasa Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir birgðaflutninga á Gasaströndinni fara of hægt af stað. Flutningabílar eru farnir að berast inn á svæðið en flóðgáttir þurfi að opnast til að bregðast við neyðarástandinu. 12. október 2025 19:43 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira
Hætt við atkvæðagreiðslu um þátttöku Ísraels í Eurovision Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hafa hætt við fyrirhugaða atkvæðagreiðslu um hvort Ísrael fái að taka þátt í Eurovision á næsta ári. Málið verði rætt á aðalfundi samtakanna í desember. 13. október 2025 16:20
Allir lifandi gíslarnir lausir úr prísund sinni Þeir tuttugu gíslar sem voru enn lifandi í haldi Hamas-samtakanna var sleppt og þeir afhentir Rauða krossinum í morgun. Þetta staðfestir Ísraelsher. Gert er ráð fyrir að líkum 28 gísla til viðbótar verði skilað síðar í dag. 13. október 2025 06:30
Flóðgáttir þurfi að opnast í Gasa Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir birgðaflutninga á Gasaströndinni fara of hægt af stað. Flutningabílar eru farnir að berast inn á svæðið en flóðgáttir þurfi að opnast til að bregðast við neyðarástandinu. 12. október 2025 19:43