Fyrsta konan sem verður erkibiskupinn af Kantaraborg Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2025 13:55 Sarah Mullally varð prestur árið 2002 og varð árið 2015 ein fyrsta konan til að fá biskupatign innan ensku þjóðkirkjunnar. AP Sarah Mullally verður fyrsta konan til leiða þjóðkirkju Englands þegar hún verður formlega skipuð erkibiskupinn af Kantaraborg.
Frá þessu var greint í morgun en hún tekur formlega við embættinu í mars á næstu árum. Mullally verður 106. erkibiskupinn af Kantaraborg í 1.400 ára sögu þjóðkirkju Englands. Erlendir fjölmiðlar segja að hópur íhaldsmanna í kirkjum víða í Afríku og Asíu hafi gagnrýnt skipun Mullally sem er einnig menntaður hjúkrunarfræðingur. Í ávarpi segir Mullally að hún finni fyrir „mikilli ábyrgð“ vegna skipunarinnar en að hún finni fyrir „friði og trú á að guð muni bera [sig]“ í verkefnunum fram undan. Hello, my name is Bishop Sarah Mullally.I'm deeply honoured to have been called to serve as the 106th Archbishop of Canterbury.https://t.co/2FIJRUADZk pic.twitter.com/IqTgcfi7tp— Archbishop of Canterbury (@OfficeofABC) October 3, 2025 Hún verður skipuð erkibiskupinn af Kantaraborg í janúar næstkomandi og tekur formlega við stjórnartaumunum í þjóðkirkju Englands í mars á næsta ári. Mullally tekur við embætti erkibiskups af Kantaraborg af Justin Welby sem afsalaði sér hempunni í nóvember síðastliðnum í kjölfar gagnrýni sem beindist að honum vegna viðbragða hans í kynferðisbrotahneyksli sem skók kirkjuna. Alls eru um 85 milljónir meðlima þjóðkirkju Englands (e. Church of England). Þó að Karl III Bretakonungur sé formlega æðsti leiðtogi kirkjunnar þá er erkibiskupinn af Kantaraborg æðsti biskup kirkjunnar og andlegur leiðtogi safnaðarins. GAFCON, hópur íhaldssamra kirkna sem tengjast ensku þjóðkirkjunni, hafa í dag gagnrýnt skipan Mullally og segja að enski armur kirkjunnar hafi með skipuninni „afsalað sér forystuvaldi sínu“. Mullally varð prestur árið 2002 og varð árið 2015 ein fyrsta konan til að fá biskupatign innan ensku þjóðkirkjunnar. Hún hefur gegnt hlutverki biskups í London síðan 2018 og þykir frjálslynd í skoðunum. Hefur hún meðal annars talað fyrir réttindum hinsegin fólks. Enska þjóðkirkjan kynnti breytingar fyrir ellefu árum sem gerðu konum heimilt að taka við stöðu erkibirkups.
Bretland Trúmál Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Fleiri fréttir Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Sjá meira