Heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. október 2025 07:32 Frumvarpið felur einnig í sér að hugtakinu „bætur“ verður skipt út fyrir „réttindagreiðslur“. Vísir/Vilhelm Stjórn Sjúkratrygginga Íslands verður lögð niður, biðtími eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins stytt og stofnuninni veitt skýrari heimildir til að ákvarða hvort einstaklingur sé sjúkratryggður hérlendis á grundvelli búsetu.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinargerð með drögum að frumvarpi til laga um breytingar á sjúkratryggingum en þar er einnig kveðið á um heimild fyrir gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisjónustu og útkalls sjúkrabifreiðar þegar flutningur á sér ekki stað. Þá verða heimildir til að láta tiltekinn kostnað sjúkratryggðra vegna þjónustu sálfræðinga og sjúkraþjálfara rýmkaðar og kveðið á um heimildir til eftirlits með aðilum sem þiggja greiðslur utan samnings. „Sex mánaða biðtími eftir sjúkratryggingu, líkt og nú er mælt fyrir um í 1. mgr. 10. gr. laganna, þekkist ekki hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Í frumvarpinu er lagt til að stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu úr sex mánuðum í þrjá til hagsbóta fyrir þá einstaklinga sem flytjast búferlum hingað til lands, en biðtími í sex mánuði eftir sjúkratryggingu þykir óþarflega langur,“ segir í greinargerðinni. Þá segir að sjúkratryggingastofnunin hafi ekki skýra heimild í lögum til að fella niður sjúkratryggingu þegar sjúkratryggður flytur búsetu sína frá Íslandi en heldur lögheimilisskráningu í Þjóðskrá. Þar sem réttur til sjúkratryggingar sé háður raunverulegri búsetu á landinu sé lagt til að stofnunin geti fellt niður trygginguna þegar ljóst þyki að einstaklingur sem er með skráð lögheimili á Íslandi sé í raun búsettur erlendis. Eins og fyrr segir eru einnig lagðar til ýmsar breytingar á gjaldtökuheimilium. „Þannig verði heimilt að innheimta gjald vegna fjarheilbrigðisþjónustu heilsugæslunnar og heilbrigðisþjónustu sem veitt er án eiginlegrar komu. Heimilt verði að taka gjald vegna útkalls sjúkrabifreiðar án þess að flutningur hafi átt sér stað og að heimilt verði að taka gjald vegna ófrjósemisaðgerða eftir almennum reglum um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu,“ segir í greinargerðinni. Þá er lagt til að stofnuninni verði heimilt að hafa eftirlit með athöfnum heilbrigðisstarfsmanna sem ekki eru á samningi, þegar athafnarnir þeirra hafa í för með sér kostnað. „Leiði eftirlit í ljós að athafnir starfsmanns séu ekki í samræmi við eðlilega og hefðbundna starfshætti er sjúkratryggingastofnuninni m.a. heimilt að beina fyrirmælum til viðkomandi. Þá eru ákvæði um úrræði ef ekki er orðið við fyrirmælum stofnunarinnar.“
Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Fjármál heimilisins Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira