Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Árni Sæberg skrifar 1. október 2025 11:20 Halldór Guðfinnsson (til vinstri) ásamt Andra Geir Eyjólfssyni og Friðriki Ottesen í flugstjórnarklefa Play þegar þeir tóku við fyrstu flugvél Play árið 2021. Play Halldór Guðfinnsson, flugrekstrarstjóri Play og maltneska dótturfélagsins, fékk uppsagnarbréf hvað íslenska félagið varðar afhent fimmtán mínútum eftir starfsmannafund maltneska félagsins og sagði í kjölfarið upp störfum á Möltu. Á fundinum sagði hann að hann væri einn tveggja starfsmanna félagsins á Íslandi sem héldi vinnunni og hann væri viss um að starfsemin á Möltu væri fjármögnuð.
Halldór staðfestir í samtali við Vísi að honum hafi verið sagt upp störfum í gær og í kjölfarið tilkynnt félaginu á Möltu og yfirvöldum þar að hann væri hættur. Mbl.is greindi fyrst frá og hafði eftir heimildum sínum að hann hefði látið af störfum. Vísir greindi frá því í gær að tilkynnt hefði verið á starfsmannafundi Fly Play Europe fyrr um daginn að stefnt væri að því að hefja rekstur á ný innan tíu vikna. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru starfsmenn maltneska félagsins upplýstir um það á starfsmannafundi í gær að unnið væri að því að færa átta þotur yfir til félagsins og tryggja þeim maltneskt flugrekstrarleyfi. Framundan væri gríðarleg pappírsvinna og stefnt væri að því að hefja rekstur aftur sem allra fyrst. Fimm dagar urðu tíu vikur Á fundinum sagði Carmen Cuschieri, yfirmaður flugþjóna hjá Fly Play Europe, að rekstur gæti hafist á nýjan leik á næstu fimm dögum. Í tölvupósti sem sendur var til starfsmanna Fly Play Europe seinna í gær kom svo fram að málið væri töluvert flóknara, og það gæti tekið nokkrar vikur að hefja starfsemi aftur. Í besta falli gæti það verið eftir fjórar til fimm vikur, en öruggast væri að giska á að ferlið gæti tekið um sex til tíu vikur. Fundurinn til þess að peppa starfsfólk „Margir vinir mínir á Íslandi voru að missa vinnuna sína, en ekki ég. Ég er einn af held ég tveimur sem eru enn þá með vinnu. Ég væri ekki núna að vinna fyrir Fly Play Europe, ef ég væri ekki viss um að það væri búið að tryggja fjármögnun fyrir verkefnið,“ sagði Halldór við starfsfólk á fundinum. Nú segir hann í samtali við Vísi að honum hafi verið sagt upp störfum í gær og sé því hvorki flugrekstrarstjóri samkvæmt íslenska flugrekstrarleyfinu, sem sé ekki til lengur, né því maltneska eftir að hafa sagt upp störfum þar á bæ. „Þetta var einfaldlega starfsmannafundur til þess að peppa fólkið upp, þetta snerist bara um það, það var ekkert meira á bak við þetta en það. Ég er ekkert inni í peningahliðinni á þessu dóti, það er bara þannig, það er ekki hlutverk flugrekstrarstjóra.“ Fréttin hefur verið leiðrétt. Upphaflega var haft eftir Halldóri að honum hefði verið sagt upp sem flugrekstarstjóra bæði hjá Play á Íslandi og Möltu. Hið rétta er að honum var sagt upp störfum á Íslandi og sagði í kjölfarið upp hjá maltneska félaginu.
Gjaldþrot Gjaldþrot Play Play Fréttir af flugi Malta Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Sjá meira