Ætlar að peppa herforingjana á fundinum fordæmalausa Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2025 08:18 Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. AP/Julia Demaree Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og fyrrverandi sjónvarpsmaður á Fox, vakti mikla furðu í vikunni þegar hann boðaði nánast alla herforingja og aðmírála Bandaríkjanna á fund í næstu viku. Fundarboðinu fylgdi engin útskýring varðandi það hvað fundurinn ætti að vera um og þótti skyndifundurinn alfarið fordæmalaus.
Í heildina eru um átta hundruð bandarískir herforingjar og aðmírálar víðsvegar um heiminn. Fundarboð Hegseth nær til langflestra þeirra auk aðstoðarmanna þeirra, hvort sem þeir eru á átakasvæðum eða ekki. Sjá einnig: Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Fjölmiðlar vestanhafs hafa nú fengið upplýsingar sem benda til þess að Hegseth ætli að peppa herforingjana á fundinum. Þar er hann sagður ætla að halda ræðu um hugfar stríðsmanna og leggja línurnar að nýrri sýn fyrir herafla Bandaríkjanna. Heimildarmenn CNN segja til dæmis að Hegseth ætli að ræða ný viðmið hvað varðar hreysti, viðbúnað og útlit yfirmanna heraflans. „Þessu er ætlað að sýna fram á hvernig nýr her Bandaríkjanna undir stjórn forsetans á að líta út,“ sagði einn heimildarmaður CNN úr Hvíta húsinu. Annar sagði fundinn snúast um að „koma hestunum í hús og hýða þá í form“. Hegseth ætli sér að segja herforingjunum að styðja markmið ríkisstjórnarinnar, annars muni ferill þeirra í hernum verða styttri en þeir héldu. Hegseth’s team is planning on recording his speech and releasing it publicly later, three of the sources said, and the White House is planning to amplify it, a White House official says— Alayna Treene (@alaynatreene) September 26, 2025 Einn heimildarmanna New York Times sagði fundinum ætlað að gera menn „spennta“ og þá meðal annars fyrir nýju óformlegu nafni varnarmálaráðuneytisins, sem er stríðsráðuneytið. Einnig er talið að Hegseth ætli mögulega að kynna nýja skýrslu um varnarmál í Bandaríkjunum sem leggja á línurnar að stefnu ríkisstjórnarinnar í þeim málum á næstu árum. Búist er við að í skýrslunni verði lagt til að Bandaríkjamenn einbeiti sér að því að verja eigin landamæri. Vill fækka herforingjum verulega Hegseth hefur gripið til margra umdeildra aðgerða sem varnarmálaráðherra, eins og breyta nafni ráðuneytisins óformlega í stríðsráðuneytið. Fyrr á árinu var sagt frá því að hann ætlaði að fækka herforingjum um fimmtung og heilt yfir yrðu háttsettum yfirmönnum í heraflanum fækkað um tíu prósent. Sjá einnig: Fækkar herforingjum um fimmtung Ráðherrann virðist samkvæmt fjölmiðlum ytra hafa gaman af leyndinni varðandi fundinn en talsmenn ráðuneytisins hafa neitað að svara spurningum um hann og Hegseth sjálfur hefur gantast um hann á samfélagsmiðlum. JD Vance, varaforseti, gerði lítið úr fundinum á fimmtudaginn og sagði að hann væri ekki svo óhefðbundinn. Þá gagnrýndi hann fjölmiðla fyrir að gera of mikið úr honum. Rándýr fundur Eins og áður segir er um mikinn fjölda herforingja og aðmírála að ræða. Margir þeirra starfa á átakasvæðum og þeim fylgja aðstoðarmenn og aðrir sem eiga einnig að mæta á fundinn. Í samtölum við fjölmiðla ytra hafa margir þeirra sagt að fundurinn komi niður á störfum þeirra og sé þar að auki rándýr í framkvæmd. Margir hafa einni velt því fyrir sér af hverju ekki sé hægt að senda út myndband eða tilkynningu, ef fundurinn eigi nánast eingöngu að snúast um pepp og ræðu Hegseths. Heimildarmenn NYT segja ástæðuna fyrir því vera að Hegseth og aðrir ráðamenn í Hvíta húsinu hafi líki við að halda fund sem þyki fordæmalaus.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira