Golf

Svona hefst Ryder-bikarinn: „Viljum ná öflugri byrjun“

Sindri Sverrisson skrifar
Jon Rahm kemur til með að taka fyrsta teighöggið fyrir Evrópu í Ryder-bikarnum í ár.
Jon Rahm kemur til með að taka fyrsta teighöggið fyrir Evrópu í Ryder-bikarnum í ár. Getty/Michael Reaves

Luke Donald, fyrirliði liðs Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi, sagðist ætla að ná sterkri byrjun gegn Bandaríkjunum í New York í dag, eftir að tilkynnt var hverjir mætast í fyrstu leikjunum.

Ryder-bikarinn vinsæli hefst í dag í beinni útsendingu á Sýn Sport 4 klukkan 11. Fyrst verða fjórir leikir í fjórmenningi, þar sem tveir kylfingar skiptast á að slá sama bolta. Síðdegis verður svo fjórbolti, þar sem hver kylfingur er með sinn bolta en betra skorið telur á hverri holu.

  • Viðureignirnar í fjórmenningi í dag:
  • Rahm/Hatton – DeChambeau/Thomas
  • Åberg/Fitzpatrick – Scheffler/Henley
  • McIlroy/Fleetwood – Morikawa/English
  • MacIntyre/Hovland – Schauffele/Cantlay

Pör sem vön eru að vinna saman

Jon Rahm og Tyrrell Hatton byrja fyrir Evrópu eftir að hafa unnið báða leiki sína saman þegar Evrópa fagnaði sigri í Róm fyrir tveimur árum. Rory McIlroy og Tommy Fleetwood unnu þá einnig frábærlega saman og höfðu betur í báðum fjórmenningsleikjum sínum.

Evrópa hefur hins vegar ekki unnið á bandarískri grundu síðan árið 2012 en Donald vonast til þess að sýna strax að biðinni gæti lokið núna.

„Við viljum ná öflugri byrjun. Rahm og Hatton hafa notið mikillar velgengni saman. Þeir vita hvernig á að vinna, þeir ná mjög vel saman og við erum mjög ánægðir með að fá þá út fyrst,“ sagði Donald.

Ætlar að byrja á ógnarlöngu höggi inn á flöt

Keegan Bradley, fyrirliði Bandaríkjanna, valdi Bryson DeChambeu með Justin Thomas sem par í fyrsta leik. DeChambeu missti af Ryder-bikarnum fyrir tveimur árum í Róm en gæti kveikt í heimafólki á vellinum með höggþunga sínum. Fyrsta hola er rúmir 360 metrar og DeChambeu stefnir beint á flöt, þó að það hafi ekki alveg gengið á æfingum:

„Það er klárlega hægt ef að það er meðvindur. Ég gæti náð fremsta hlutanum ef aðstæður eru ekki of mjúkar. Það eru 365 jardar eða svo. Það er ekkert, ekki satt? Bara venjulegt, langt teighögg,“ sagði DeChambeau.

Sjaldan unnið á útivelli en þó oftar en Bandaríkin

Það getur skipt lykilmáli að byrja vel. Evrópa vann alla fjórmenningana á fyrsta degi í Róm fyrir tveimur árum, á meðan að Bandaríkin komust í 3-1 þegar keppt var á Whistling Straits fyrir fjórum árum. Árið 2016 komust Bandaríkin í 4-0 og Evrópa náði sér aldrei á strik eftir það.

„Ég er búinn að búa mig undir þetta í 21 mánuð,“ sagði Donald. „Við skiljum hvaða verkefni bíður okkar, við vitum hvað það er erfitt að vinna á útivelli, en við höfum gert það. Við höfum unnið fjórum sinnum síðan 1987 en Bandaríkin einu sinni. Svo þetta hefur verið gert og við munum nýta okkur þessa reynslu,“ sagði Donald.

Dagskráin í Ryder-bikarnum

Föstudagur:

11:10 Fjórmenningur, 4 leikir

16:25 Fjórbolti, 4 leikir

Laugardagur:

11:10 Fjórmenningur, 4 leikir

16:25 Fjórbolti, 4 leikir

Sunnudagur:

16:00 Tvímenningur, 12 leikir

Alls eru 28 vinningar í boði og liðin þurfa því 14 og ½ vinning til að vinna mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×