Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Valur Páll Eiríksson skrifar 25. september 2025 18:20 Janus Daði skoraði sjö mörk í kvöld, þar á meðal síðustu tvö mörk Szeged sem réðu úrslitum. Janus Daði Smárason réði úrslitum er Pick Szeged vann glæsilegan 31-29 sigur á Paris Saint-Germain í Ungverjalandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.
Szeged og PSG voru jöfn að stigum í riðli sínum fyrir leik kvölds, höfðu hvort um sig unnið einn leik en tapað öðrum. Frönsku gestirnir byrjuðu betur í Szeged í kvöld og komust mest fjórum mörkum yfir snemma leiks, 9-5. Við tók góður kafli heimamanna sem jöfnuðu leikinn 12-12 og eftir það var skipst á að skora. Staðan í hálfleik jöfn 17-17 og Janus Daði með þrjú marka heimamanna fyrir hlé. Meira af því sama tók við eftir hlé. Szeged skoraði fyrsta markið og liðin skiptust á forystunni. Þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir hafði hvorugt liðanna náð meira en eins marks forystu allan síðari hálfleikinn en Szeged yfirleitt skrefinu á undan. Loks náði Szeged tveggja marka forystu, 30-28, með marki Janusar Daða þegar 90 sekúndur lifðu leiks. Janus Daði innsiglaði svo sigur Szeged þegar um 25 sekúndur voru eftir og skoraði því síðustu tvö mörk heimamanna í leiknum. PSG skoraði sárabótamark á lokasekúndunni en 31-29 úrslit leiksins. Janus Daði var markahæstur á vellinum með sjö mörk, en liðsfélagi hans Imanol Alustiza gerði slíkt hið sama og Sebastian Karlsson skoraði sjö mörk fyrir PSG. Szeged er eftir sigurinn með fjögur stig eftir þrjá leiki í riðlinum. Einn annar leikur var á dagskrá í riðlinum. Barcelona vann þægilegan 32-25 útisigur á Zagreb þar sem Viktor Gísli Hallgrímsson sat á bekknum á meðan Daninn Emil Nielsen stóð allan leikinn á milli stanganna. Í kvöld mætir Íslendingalið Magdeburgar pólska liðinu Wisla Plock í sama riðli.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira