Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir, Ármann Hákon Gunnarsson, Baldvin Björgvinsson, Brynja Guðnadóttir, Haraldur Ingi Haraldsson, Jón Hallur Haraldsson, Kolbrún Erna Pétursdóttir, Ólafur H. Ólafsson, Rakel Hildardóttir og Sigrún Jónsdóttir skrifa 25. september 2025 12:01 Opið bréf til allra sem nú sitja í stjórnum Sósíalistaflokks Íslands. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti sósíalista í borginni, mælist vinsælasti borgarfulltrúinn ár eftir ár. Samkvæmt Borgarvita Maskínu í ágúst 2025, telja um 90% kjósenda flokksins Sönnu hafa staðið sig best allra borgarfulltrúa á yfirstandandi kjörtímabili. Reyndar er einsdæmi hversu vinsæl hún er meðal kjósenda eigin flokks, en kjósendur annarra flokka hafa mun skiptari skoðanir á því hvaða fulltrúi þeir telja að standi sig best. Því er óskiljanlegt hversu staðráðnir nokkrir meðlimir stjórna flokksins virðast í því að sverta orðspor hennar - og flokksins þar með. Hefur lítill flokkur yfirleitt efni á því að fæla frá sér vinsælasta borgarfulltrúann og þar með fjölda kjósenda? Fyrst senda tveir meðlimir flokksstjórna frá sér vantraustsyfirlýsingu gegn Sönnu í nafni félaga í Norðausturkjördæmi. Skömmu síðar taka meðlimir framkvæmdastjórnar flokksins undir með “ályktun”, þar sem Sanna er hvött til að segja sig úr flokknum. Félagsmenn voru ekki spurðir álits, hvað þá þær þúsundir kjósenda sem Sanna starfar fyrir af heilindum. Þögn annarra stjórnarmeðlima er hávær. Félagar og kjósendur flokksins hljóta að spyrja sig að því hversu almennan stuðning megi finna innan stjórna flokksins við þessa átakanlegu vegferð, sem aðeins örfáir hafa í reynd sett nöfn sín við. Undirrituð spyrja í einlægni hvort farið sé í þessa illskeyttu herferð gegn Sönnu í nafni allra stjórnarmeðlima flokksins? Er þetta vegferð sem félagar í flokknum hafa samþykkt? Fulltrúar flokksins í borgarstjórn sitja þar í krafti kjósenda - ekki í krafti nokkurra einstaklinga sem telja sig hafa umboð félagsmanna til að bola félögum úr flokknum. Svo virðist sem sum þeirra telji að nóg sé að höfða til hluta þeirra 200 félaga sem náðarsamlegast hljóta aðgang að lokuðu og ítarlega ritskoðuðu spjalli flokksins á Facebook. Við, undirrituð, kjósendur, sem og fyrrum og núverandi félagar í flokknum, mótmælum því að þessir örfáu einstaklingar, sem treyst var fyrir þeirri ábyrgð að sjá um daglegan rekstur flokksins til 12 mánaða, hafi raunverulegt umboð til að fara fram á þennan hátt gegn kjörnum fulltrúa okkar í borgarstjórn. Fulltrúa sem hefur árum saman verið til fyrirmyndar sem fulltrúi okkar, og félagshyggjunnar. Það er mikilvægt að þið áttið ykkur á stöðunni sem framkvæmdastjórn hefur skapað. Herferðin gegn Sönnu kemur í kjölfar þess að þrír félagar voru kærðir fyrir að sinna þeirri ábyrgð sem þeim hafði verið falin. Þau voru kærð fyrst og fremst vegna skoðanaágreinings um hvernig hreyfingu átti að byggja upp. Ef ekkert er að gert er hætta á að þessi vegferð verði fordæmisgefandi. Ef Sanna er nú í skotlínunni, hver er þá næstur? Er þetta samskiptamenningin sem við viljum innan flokksins? Í nafni sósíalisma? Er það flokknum til framdráttar að reknar séu herferðir gegn félögum í fjölmiðlum ef þeir eru ekki stjórnum þóknanlegir? Æðsta vald flokksins er Sósíalistaþing. Málefnastjórn, Kosningastjórn og Félagastjórn hafa allar umboð til að boða til Sósíalistaþings - framkvæmdastjórn situr ekki ein að því valdi. Við hvetjum alla þá stjórnarmeðlimi sem átta sig á stóra samhenginu til að virða kjósendur flokksins og almenna félagsmenn og boða til Sósíalistaþings með auka-aðalfundi án tafar - og að þar verði kosið á ný í stjórnir. Við krefjumst þess að lýðræðið sé virt og að félagsmenn fái að taka beinan þátt í öllum stórum ákvörðunum er varða flokksstarfið. Framkvæmdastjórn var aldrei hugsuð sem toppur stigveldis í flokknum - hún á að þjóna og taka ábyrgð á að framkvæma vilja félagsmanna. Í ljósi þess að meðlimir hennar hafa gerst sekir um þá valdníðslu sem við höfum orðið vitni að, er bráðnauðsynlegt að félagar fái tækifæri til að kjósa aftur í stjórnir. Að örfáum einstaklingum leyfist að taka slíkar glapræðisákvarðanir sem hér hefur verið lýst mun aðeins halda áfram að sverta orðspor flokksins, sem og allra þeirra sem honum tengjast. Ekki síst ykkar, sem sóttust eftir ábyrgðinni. Nöfn ykkar eru nú beintengd við þessa vegferð. Ef þið sýnið ekki sóma ykkar í því að grípa inn í munuð þið brátt teljast samsek til frambúðar. Sýnið félagsmönnum að ykkur sé raunverulega treystandi fyrir ábyrgðinni sem ykkur var falin. Takið af skarið og bjóðið félagsmönnum þátttöku í öllum stórum ákvörðunum! Valdníðslu sem þessa má ekki láta óafskipta - þögn er hér sama og samþykki. Sanna var kjörin til ábyrgðar af hartnær fimm þúsund kjósendum - ábyrgð sem hún axlar af heilindum. Að sama skapi voruð þið kjörin til ábyrgðar af hluta félagsmanna. Ef vilji félagsmanna er raunverulega sá að stjórnir megi beita slíkri valdníðslu gegn félagsmönnum, hlýtur lágmarkskrafan þó að vera sú að umboð stjórna til þess sé óvéfengjanlegt! Að þessi nýja stefna sé staðfest af æðsta valdi flokksins, Sósíalistaþingi! Um 400 tilvonandi kjósendur hafa nú lýst yfir stuðningi við Sönnu Magdalenu í kjölfar þessarar misráðnu herferðar stjórnarmeðlimanna. Við hvetjum alla lesendur sem standa með Sönnu til að bæta nafni sínu við listann á felagshyggja.com. Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir Ármann Hákon Gunnarsson Baldvin Björgvinsson Brynja Guðnadóttir Haraldur Ingi Haraldsson Jón Hallur Haraldsson Kolbrún Erna Pétursdóttir Ólafur H. Ólafsson Rakel Hildardóttir Sigrún Jónsdóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Halldór 06.06.26. Halldór Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun