Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 15. september 2025 18:06 McGregor sagðist ætla að koma böndum á innflytjendamálin og standa vörð um írska menningu í embætti forseta. EPA Bardagakeppinn Conor McGregor hefur ákveðið að draga framboð sitt til forseta Írlands til baka. Hann líkir framboðsreglunum við spennitreyju sem komi í veg fyrir lýðræðislegt kjör.
McGregor greindi frá þessu á X í morgun. Tæp tvö ár eru síðan hann sagðist íhuga að bjóða sig fram í næsta forsetakjöri. Forseti Írlands er kjörinn til sjö ára. Embættið er, líkt og á Íslandi, formlegt að mestu leyti og felur í sér mjög takmarkað vald. Eftir að McGregor bauð sig fram hét hann því að koma böndum á innflytjendamálin í landinu til þess að standa vörð um írska menningu. Á Írlandi þurfa forsetaframbjóðendur að njóta stuðnings annað hvort tuttugu þingmanna eða fjögurra stjórnvalda. McGregor hefur lýst því fyrirkomulagi sem ósanngjörnu. Elon Musk auðmaður, Donald Trump Bandaríkjaforseti og Tucker Carlson fyrrverandi þáttastjórnandi hjá Fox hafa meðal annars lýst yfir stuðningi við McGregor. Guardian hefur eftir McGregor að framboð hans hafi undirstrikað ósanngirni í kjörgengisreglum írsku stjórnarskrárinnar. Hann hefur beðið afhroð í skoðanakönnunum og mældist til að mynda með sjö prósent fylgi í nýlegri könnun. Í nóvember í fyrra var McGregor fundinn sekur um kynferðisbrot árið 2018 og gert að greiða brotaþola um 36 milljónir íslenskra króna í skaðabætur. Hann áfrýjaði málinu til æðra dómstigs þar sem málsástæður hans héldu ekki vatni og honum gert að greiða skaðabæturnar.
Írland MMA Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Sjá meira