Tjáði sig um ástarsambandið sem splundraði tveimur hjónaböndum Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. september 2025 12:18 Michelle Pfeiffer og John Malkovich í rómantísku períódunni Dangerous Liaisons sem leiddi til tveggja skilnaða. Getty Leikarinn John Malkovich hefur tjáð sig í fyrsta skiptið opinberlega um ástarsambandið sem hann átti með meðleikkonu sinni, Michelle Pfeiffer, árið 1988 sem varð til þess að þau skildu bæði við maka sína.
Malkovich og Pfeiffer léku saman í rómantísku períódunni Dangerous Liaisons (1988) sem fjallar um klækjarefinn Vicomte de Valmont (Malkovich) sem veðjar við gamla ástkonu sína, Marquise de Merteuil (Glenn Close), að hann geti tælt hina ungu Madame de Tourvel (Pfeiffer). Ástarsambandið teygði sig út fyrir skjáinn inn í raunheima og er talið hafa leitt til tveggja skilnaða. Eftir að myndin kom út skildi Malkovich við þáverandi eiginkonu sína, Glenne Headly, eftir sex ára hjónaband og skömmu síðar skildi Pfeiffer við þáverandi eiginmann sinn, leikarann Peter Horton. Raunveruleiki og skáldskapur sköruðust Hvorki Malkovich né Pfeiffer hafa tjáð sig um sambandið opinberlega en Malkovich gerði það hins vegar í viðtali í hlaðvarpinu Fashion Neurosis nýverið. „Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei nokkurn tímann talað um. Við skulum orða það svona, í minni vinnu þá myndarðu tilfinningaleg tengsl við fólk mjög hratt. Það er hluti af starfinu. Mjög sjaldan teygja þau tengsl sig út fyrir starfið,“ sagði Malkovich. „Fyrir mér, var hún manneskja sem ég mat mikils sem kollega, var mjög skemmtileg, hreyfði við mér og var sanngjörn við mig. Ég var það sannarlega ekki,“ sagði hann. Stephen Frears, sem leikstýrði Dangerous Liaisons, sagði í viðtali árið 2003 að raunveruleikinn og skáldskapur hefði skarast við tökurnar. „Frábær kollegi er sjaldgæfari en nokkuð annað. Þegar þannig samband verður meira en vinnusamband eða vinasamband - jafnvel djúpt vinasamband - þá, í minni reynslu og það gæti verið ákveðin sálfræði, heimska eða klaufska eða allt þrennt, þá missirðu frábæran kollega,“ sagði Malkovich um samband þeirra. Eftir skilnaðinn við Malkoivch giftist Headly tónlistarmanninum Byron McCulloch en hún lést síðan úr blóðtappa árið 2017, aðeins 62 ára. Malkovich hefur verið giftur ítalska leikmyndahönnuðinum Nicolettu Peyran frá 1989 og á með henni tvö börn. Pfeiffer, sem hefur aldrei tjáð sig um sambandið skildi við Horton árið 1990 og giftist framleiðandanm David E. Kelley þremur árum síðar og á með honum tvö börn.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Fleiri fréttir „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira