Eze fari til Spurs fyrir vikulok Valur Páll Eiríksson skrifar 19. ágúst 2025 16:16 Eze fagnar marki á Tottenham-vellinum. Hann gæti gert það í hvítri treyju í vetur. Charlotte Wilson/Offside/Offside via Getty Images Fátt virðist geta komið í veg fyrir skipti enska fótboltamannsins Eberechi Eze frá Crystal Palace til Tottenham. Palace getur átt von á því að missa tvo lykilmenn fyrir gluggalok en félagið hefur gott sem ekkert styrkt sig í sumar.
Daily Mail segir frá því að skipti Eze frá Palace til Tottenham verði kláruð á næstu dögum, og líklega fyrir helgina. Kaupverð sé nærri 50 milljónum sterlingspunda. Eze hefur ítrekað verið orðaður frá Palace undanfarna félagsskiptaglugga enda verið á meðal bestu leikmanna liðsins. Tottenham leitar sóknartengiliðs eftir að James Maddison sleit krossband á dögunum. Crystal Palace vann fyrsta titilinn í sögu félagsins, enska bikartitilinn, í vor og fylgdi því eftir með sigri á Liverpool um Samfélagsskjöldinn fyrir rúmri viku. Liðið tekur þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn í vetur en hefur þrátt fyrir það aðeins bætt við sig tveimur leikmönnum í sumar. Borna Sosa, vinstri bakvörður, var keyptur á þrjár milljónir punda frá Ajax og varamarkvörðurinn Walter Benítez kom frítt frá PSV Eindhoven. Auk brotthvarfs Eze þykir líklegt að fyrirliðinn Marc Guéhi verði seldur til Liverpool, en hann er sagður hafa hafnað Newcastle United. Palace sér því fram á að þurfa að fylla skörð besta varnarmanns síns auk mest skapandi leikmanns liðsins fram á við. Crystal Palace gerði markalaust jafntefli við Chelsea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn var. Liðið fær Nottingham Forest í heimsókn á sunnudaginn kemur.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Góðir tímar framundan“ Íslenski boltinn „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ Íslenski boltinn „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Úrslitaleikurinn á HM reyndist síðasti leikurinn á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Sjá meira