Tóku tugi af lífi eftir að hafa fengið lausnarfé Samúel Karl Ólason skrifar 28. júlí 2025 16:40 Glæpagengi og vígahópar hafa lengi verið áhrifamiklir í norðurhluta Nígeríu og hefur hernum gengið illa að berjast gegn þeim. Myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA/Henry Ikechukwu Glæpamenn sem rændu 56 manns í Zamfara-héraði í Nígeríu hafa tekið að minnsta kosti 35 þeirra af lífi. Það gerðu þeir þrátt fyrir að hafa fengið greitt lausnarfé fyrir fólkið. Embættismenn segja flesta hinna látnu hafa verið unga og að þeim hafi verið „slátrað eins og búfénaði“.
Mannrán eru tíð á þessu svæði í norðanverðri Nígeríu. Glæpagengi eru sögð þéna töluvert á því að ræna fólki og krefjast peninga fyrir að sleppa því úr haldi. Í fyrra var um 280 börnum rænt í einni árás í norðurhluta Nígeríu. Sjá einnig: Um 280 börnum rænt í bænum Kuriga í Nígeríu Árið 2022 voru samþykkt lög í Nígeríu sem fela í sér að hægt er að dæma fólki í að minnsta kosti fimmtán ára fangelsi fyrir að greiða glæpamönnum lausnarfé. Var markmiðið með því að reyna að draga úr mannránum en hingað til hefur enginn verið handtekinn á grunni þessara laga. Í þessu tilfelli, samkvæmt frétt BBC, var fólkinu rænt frá þorpinu Banga í mars. Mannræningjarnir kröfðust þess í kjölfarið að fá um átta tíu þúsund krónur fyrir hvern fanga. Háttsettur embættismaður af svæðinu sagði í samtali við BBC að eftir langar viðræður hafi lausnarfé verið greitt. Glæpamennirnir hafi sleppt sautján konum og einum ungum dreng. Hinir voru myrtir og þykir ólíklegt að líkum þeirra verði nokkurn tímann skilað.
Nígería Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira