Þurfa að losa leikmenn til að skrá Rashford Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. júlí 2025 08:31 Marcus Rashford er mættur til Barcelona. Mark Robinson/Getty Images) Áframhaldandi fjárhagsvandræði spænska stórveldisins Barcelona gera það að verkum að félagið þarf að losa sig við leikmenn til að geta skráð Marcus Rashford sem leikmann liðsins.
Eins og greint hefur verið frá undanfarna daga er Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, við það að ganga í raðir Barcelona. Talið er að Rashford sé nú þegar lentur í borginni og búinn að standast læknisskoðun. Þó á ýmislegt eftir að gerast áður en hann fær grænt ljós til að spila í spænsku úrvalsdeildinni, sem hefst um miðjan næsta mánuð. Börsungar hafa nefnilega verið í vandræðum með að skrá leikmenn undanfarin ár. Reglur deildarinnar um launakostnað hafa áður sett strik í reikninginn og nú er það sama uppi á teningnum. Á síðasta ári lenti félagið til að mynda í vandræðum með að skrá Dani Olmo til leiks, bæði síðasta sumar og eftir áramót. Sky Sports greinir nú frá því að félagið þurfi að öllum líkindum að selja eða lána leikmenn til að geta skráð Rashford til leiks. Samkvæmt heimildum Sky Sport vinnur félagið nú hörðum höndum að því að leysa úr þessari flækju. Þrátt fyrir þessi mögulegu vandræði er þó talið að Börsungar nái að skrá Rashford til leiks í tæka tíð.
Spænski boltinn Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti „Langir fætur hjálpa við að sparka í hausinn á þeim“ Sport Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Körfubolti Fleiri fréttir Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Sjá meira