Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2025 11:31 Katrine Lunde er enn að spila 45 ára gömul og bætir stöðugt við titlum í safnið. Getty/Alex Davidson Sigursælasta handboltakona sögunnar bætti við titli í safnið í gærkvöldi þegar Odense Håndbold varð danskur meistari. Norski markvörðurinn Katrine Lunde skipti yfir í Odense Håndbold á miðju tímabili þegar norska félagið Vipers Kristiansand fór á hausinn. Odense tryggði sér titilinn með 33-31 sigri á Team Esbjerg í gærkvöldi. Katrine Lunde hafði orðið norskur meistari með Vipers undanfarin sjö ár. Með því að vinna danska titilinn með Odense þá hefur hún orðið landsmeistari sextán sinnum á ferlinum. Hún hafði unnið danska titilinn þrisvar áður en þá með Viborg HK. Hún varð síðan fjórum sinnum ungverskur meistari með Győri ETO KC og einu sinni rússneskur meistari með Rostow am Don. Hún vann þó ekki sinn fyrsta landstitil árið 2008 þegar hún var orðin 28 ára gömul. Vann þannig bara silfur og brons með Álaborgarliðinu sem hún spilaði með í þrjú ár áður en hún kom til Viborg. Frá því að sá fyrsti kom í hús þá hefur hún orðið landsmeistari á sextán af átján árum. Katrine Lunde hefur líka unnið Meistaradeildina sjö sinnum á ferlinum og þá hefur hún unnið tuttugu verðlaun með norska landsliðinu á stórmótum (12 gull, 5 silfur og 3 brons). Lunder 45 ára gömul og enn einn allra besti markvörður heims. Landsmeistaratitlar Katrine Lunde: 2008 - Danskur meistari með Viborg (1) 2009 - Danskur meistari með Viborg (2) 2010 - Danskur meistari með Viborg (3) 2011 - Ungverskur meistari með Győri (4) 2012 - Ungverskur meistari með Győri (5) 2013 - Ungverskur meistari með Győri (6) 2014 - Ungverskur meistari með Győri (7) 2017 - Rússneskur meistari með Rostow am Don (8) 2018 - Norskur meistari með Vipers (9) 2019 - Norskur meistari með Vipers (10) 2020 - Norskur meistari með Vipers (11) 2021 - Norskur meistari með Vipers (12) 2022 - Norskur meistari með Vipers (13) 2023 - Norskur meistari með Vipers (14) 2024 - Norskur meistari með Vipers (15) 2025 - Danskur meistari með Odense (16) View this post on Instagram A post shared by Tophåndbold Kvinder (@tophaandboldkvinder) Danski handboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira
Norski markvörðurinn Katrine Lunde skipti yfir í Odense Håndbold á miðju tímabili þegar norska félagið Vipers Kristiansand fór á hausinn. Odense tryggði sér titilinn með 33-31 sigri á Team Esbjerg í gærkvöldi. Katrine Lunde hafði orðið norskur meistari með Vipers undanfarin sjö ár. Með því að vinna danska titilinn með Odense þá hefur hún orðið landsmeistari sextán sinnum á ferlinum. Hún hafði unnið danska titilinn þrisvar áður en þá með Viborg HK. Hún varð síðan fjórum sinnum ungverskur meistari með Győri ETO KC og einu sinni rússneskur meistari með Rostow am Don. Hún vann þó ekki sinn fyrsta landstitil árið 2008 þegar hún var orðin 28 ára gömul. Vann þannig bara silfur og brons með Álaborgarliðinu sem hún spilaði með í þrjú ár áður en hún kom til Viborg. Frá því að sá fyrsti kom í hús þá hefur hún orðið landsmeistari á sextán af átján árum. Katrine Lunde hefur líka unnið Meistaradeildina sjö sinnum á ferlinum og þá hefur hún unnið tuttugu verðlaun með norska landsliðinu á stórmótum (12 gull, 5 silfur og 3 brons). Lunder 45 ára gömul og enn einn allra besti markvörður heims. Landsmeistaratitlar Katrine Lunde: 2008 - Danskur meistari með Viborg (1) 2009 - Danskur meistari með Viborg (2) 2010 - Danskur meistari með Viborg (3) 2011 - Ungverskur meistari með Győri (4) 2012 - Ungverskur meistari með Győri (5) 2013 - Ungverskur meistari með Győri (6) 2014 - Ungverskur meistari með Győri (7) 2017 - Rússneskur meistari með Rostow am Don (8) 2018 - Norskur meistari með Vipers (9) 2019 - Norskur meistari með Vipers (10) 2020 - Norskur meistari með Vipers (11) 2021 - Norskur meistari með Vipers (12) 2022 - Norskur meistari með Vipers (13) 2023 - Norskur meistari með Vipers (14) 2024 - Norskur meistari með Vipers (15) 2025 - Danskur meistari með Odense (16) View this post on Instagram A post shared by Tophåndbold Kvinder (@tophaandboldkvinder)
Landsmeistaratitlar Katrine Lunde: 2008 - Danskur meistari með Viborg (1) 2009 - Danskur meistari með Viborg (2) 2010 - Danskur meistari með Viborg (3) 2011 - Ungverskur meistari með Győri (4) 2012 - Ungverskur meistari með Győri (5) 2013 - Ungverskur meistari með Győri (6) 2014 - Ungverskur meistari með Győri (7) 2017 - Rússneskur meistari með Rostow am Don (8) 2018 - Norskur meistari með Vipers (9) 2019 - Norskur meistari með Vipers (10) 2020 - Norskur meistari með Vipers (11) 2021 - Norskur meistari með Vipers (12) 2022 - Norskur meistari með Vipers (13) 2023 - Norskur meistari með Vipers (14) 2024 - Norskur meistari með Vipers (15) 2025 - Danskur meistari með Odense (16)
Danski handboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira