Erlent

Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregluþjónar í Los Angeles í nótt.
Lögregluþjónar í Los Angeles í nótt. AP/Ethan Swope

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að senda tvö þúsund menn úr þjóðvarliði Kaliforníu til Los Angeles og úthverfa, þrátt fyrir að Gavin Newsom, ríkisstjóri, hafi mótmælt því. Forsetinn vill nota hermennina til að kveða niður mótmæli sem haldin hafa verið gegn áhlaupum og handtökum útsendara Innflytjendastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í borginni.

Sérfræðingar segja í samtali við LA Times að til að virkja þjóðvarðlið Kaliforníu, sem heyrir í raun undir ríkisstjórann, sé Trump að beita lagaákvæði sem hafi sjaldan verið beitt áður. Óljóst sé hvort hann megi þetta yfir höfuð og ljóst sé að málaferli séu í vændum vegna þessa.

Newsom segir staðbundin löggæsluembætti í stakk búin til að takast á við mótmælin og löggæslufólk hafi gert það vel hingað til. Hann segir markmið Trump-liða með því að senda hermenn á vettvang sé að valda stigmögnun og auka á spennuna í Los Angeles.

Newsom hefur biðlað til mótmælenda að sýna stillingu og gefa Trump-liðum ekki frekara tilefni til stigmögnunar. Það væri það sem þeir vildu.

Óljóst er hvenær þjóðvarðliðið á að mæta til borgarinnar.

Mótmælendur Í Compton í Los Angeles reisa tálma.AP/Ethan Swope

Segir landgönguliða næsta

Í tilkynningu frá Hvíta húsinu sem send var út í gærkvöldi segi að aðgerðum ICE sé ætlað að vinna bug á innrás glæpamanna í Bandaríkin og að „gagnslausir“ vinstri sinnaðir leiðtogar Kaliforníu hafi brugðist skyldu þeirra að verja íbúa ríkisins.

Þess vegna væri Trump að senda þjóðvarðlið á vettvang, þar sem glæpastarfsemi hefði verið leyft að blómstra, samkvæmt Karoline Leavitt, talskonu Trumps.

„Ríkisstjórn Trumps hefur ekkert umburðarlyndi glæpsamlegri hegðun og ofbeldi, sérstaklega þegar því er beint að löggæslumönnum sem eru að vinna störf sín.“

Alríkissaksóknarar í Kaliforníu hafa heitið því að bera kennsl á mótmælendur sem brjóti lögin og lögsækja þá.

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, sagði í nótt að til greina kæmi að senda landgönguliða til Los Angeles.

Í færslu sem hann skrifaði á X sagði ráðherrann að ofbeldi gegn útsendurum alríkisins og skemmdarverk á eignum yrði ekki liðið undir stjórn Trumps. Þess vegna væri verið að senda þjóðvarðliða til LA og ef það dugði ekki til yrðu landgönguliðar sendir.

Newsom skrifaði í kjölfarið eigin færslu á X þar sem hann vísaði til orða Hegseths um að senda landgönguliða gegn bandarískum ríkisborgurum.

„Þetta er sturluð hegðun.“

Mótmæli og átök

Síðustu daga hefur komið til mótmæla og jafnvel átak í LA í tengslum við umfangsmikil áhlaup þungvopnaðra útsendara ICE og annarra alríkisembætta í borginni. Tugir manna hafa verið handteknir í þessum áhlaupum.

Sjá einnig: Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles

Trump hefur verið sagður ósáttur við hve illa gengið hefur að vísa fólki sem dvelur ólöglega í Bandaríkjunum úr landi og er áhlaupunum í LA og víðar um Bandaríkin ætlað að auka þann fjölda.

Todd Lyons, yfirmaður ICE, varði aðferðir stofnunarinnar fyrr í vikunni og sagði þá að verið væri að handtaka um 1.600 manns á degi hverjum. Um væri að ræða hættulega glæpamenn.

Köstuðu grjóti að löggæslumönnum

Spennan jókst svo í gær þegar útsendarar ICE gerðu fleiri áhlaup í LA og úthverfum og þá sérstaklega í borginni Paramount. Stór hluti íbúa þar er af latneskum uppruna og kom til umfangsmikilla mótmæla.

Fjöldi fólks kom saman í bænum þar sem útsendarar ICE voru og köstuðu meðal annars grjóti að löggæslumönnum og var kveikt í að minnsta kosti einum bíl, samkvæmt AP fréttaveitunni.

Löggæslumenn svöruðu með því að beita táragasi, hvellsprengjum og piparúða, auk þess sem þeir notuðust við gaddavír til að stöðva mótmælendur, sem kölluðu eftir því að útsendarar ICE færu frá Paramount.

AP hefur eftir Peggy Lemons, borgarstjóra Paramount, að fólk sé óttaslegið yfir aðgerðum ICE þar. Það komi henni ekki á óvart að óreiða hafi fylgt starfsmönnum stofnunarinnar, miðað við það hvernig þeir hafi haldið á spöðunum.


Tengdar fréttir

Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur

Maður sem var fluttur frá Bandaríkjunum til El Salvador fyrir mistök hefur verið fluttur aftur til Bandaríkjanna. Hann hefur hins vegar verið ákærður í Bandaríkjunum fyrir að flytja ólöglega innflytjendur til landsins.

Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“

Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segist hafa hafnað boði Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að senda bandaríska hermenn yfir landamærin til að aðstoða Mexíkó í baráttunni við glæpagengi. Sheinbaum segir fullveldi landsins ekki til sölu.

Ryður leiðina fyrir Trump til að vísa hálfri milljón úr landi

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Donald Trump, forseti, megi svipta farand- og flóttafólk frá Haítí, Kúbu, Níkaragva og Venesúela tímabundinni vernd gegn brottvísunum sem þau hafa fengið. Þannig má Trump vísa þeim úr landi áður en umsóknir þeirra um dvalarleyfi eru tekin fyrir.

Náðar spilltan fógeta

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að hann ætlaði sér að náða fógeta sem dæmdur var í tíu ára fangelsi fyrir mútuþægni og annarskonar spillingu. Forsetinn segir fógetann spillta hafa verið ofsóttan af öfgamönnum í dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna.

Vilja leggja réttarríkið til hliðar

Embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, eru að skoða leiðir til að leggja rétt fólks á vernd gegn fangelsun án dóms og laga til hliðar. Það vilja þeir gera svo auðveldara verði fyrir þá að flytja fólk sem sakað er um að vera í Bandaríkjunum ólöglega úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×