Veður

Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs

Árni Sæberg skrifar
Búast má við hvassviðri næsta sólarhringinn.
Búast má við hvassviðri næsta sólarhringinn. Vísir/Vilhelm

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna frá og með klukkan 18 í kvöld, vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að spáð sé norðan hvassviðri með hvössum vindhviðum, sem geti skapað hættulegar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig vind. Á ákveðnum svæðum sé einnig búist við snjókomu og skafrenningi, sem geti valdið verulega skertum akstursskilyrðum og samgöngutruflunum, einkum á fjallvegum. 

Ökutæki sem ekki eru búin til vetraraksturs geti átt í erfiðleikum við þessar aðstæður, og því sé ekki ráðlegt að leggja í ferðalög til fjalla á meðan veðrið gengur yfir. Þá megi einnig búast við vatnavöxtum og skriðuföllum á norðanverðu landinu.

Almannavarnir hvetji ferðafólk og almenning til að:

  • Fylgjast vel með veðurspám og viðvörunum á vef Veðurstofu Íslands: www.vedur.is
  • Skoða færð og aðstæður á vegum á vef Vegagerðarinnar: www.umferdin.is
  • Tryggja lausamuni sem geta fokið og valdið tjóni
  • Gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi sitt og annarra

Almannavarnir hvetji einnig almenning og ferðaþjónustuaðila til að aðstoða við að upplýsa erlent ferðafólk um veðrið sem framundan er, og tryggja að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að tryggja öryggi þess.


Tengdar fréttir

Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn

Veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir alla landshluta. Fyrstu gulu viðvaranirnar tóku gildi fyrr í dag, á Norðurlandi og Austurlandi að Glettingi, og hinar munu jafnt og þétt taka gildi á næstu klukkutímum.

Gæti komið til lokana á vegum

Heilmikið viðbragð er hjá Vegagerðinni vegna veðurviðvarana á morgun þar sem von er á vetrarverði þó júní sé runninn upp. Komið gæti til vegalokana á Suðausturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×