Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk BL & Ragnheiður Tryggvadóttir 5. júní 2025 08:47 Þakglugginn í Dacia Bigster opnar verulega á rýmistilfinninguna aftur í og virkilegur lúxus að geta opnað topplúguna í sjaldgæfum hitabylgjum. Topplúgum fylgir líka alltaf einhver stuð stemmingin. Tveggja stafa tölur um allt land, þetta á ekki að geta gerst! Hitamælirinn steig hratt og ekki sást ský á himni. Sólarfiðringurinn hríslaðist um mig svo ég gat ekki setið kyrr. Ég varð að gera eitthvað, nota sólina, fara í ferðalag, útilegu, fjallgöngu, fá mér ís. Ég var líka á splunkunýjum bíl sem hreinlega hrópaði á ferðalag, Dacia Bigster Extreme.
Dacia Bigster er nýjasta trompið frá Dacia, sem stendur sig hvað best í framleiðslu á áreiðanlegum og hagkvæmum bílum. „Hvítur Duster!!“ Rúmenski bílaframleiðandinn Dacia kann aldeilis að hanna hentuga bíla í ferðalög en einn algengasti bíllinn á íslenskum vegum er Dacia Duster. Annar hver ferðamaður sem kemur hingað til lands leigir sér Duster til að þvælast um landið og ferðaleikurinn „Hvítur Duster!“ gæti skákað hinum sígilda leik „Gulur bíll!“… veit samt ekki hvað kæmi í staðinn fyrir svarið „Bleikur fíll!“ Einfaldleiki, notagildi og útvist Sögu Dacia má rekja allt til ársins 1966 en fyrirtækið var stofnað af ríkisstjórn Rúmeníu á kommúnistatímanum. Tilgangurinn var að framleiða áreiðanlega og dugandi bíla fyrir almenning á viðráðanlegu verði og það tókst, bílarnir urðu þekktir fyrir einfaldleika og endingu. Árið 1999 keypti Renault sig inn og er í dag eigandi Dacia. Ég veit ekki hvað ég mætti mörgum hvítum Dusterum á ferðalaginu. Dacia Logan kom út árið 2004 og sló í gegn í Evrópu og Ameríku, Dusterinn kom út 2010 og lagði heiminn að fótum fyrir að hafa allt sem þarf til ferðalaga án þess að flækja málin. Stóri bróðir Dustersins, Bigster er síðan nýjasta tromp Dacia og er eins og nafnið gefur til kynna talsvert stærri og gerðarlegri. 612 lítrar af nesti? Stórar innkaupaferðir eru lítið mál á Bigsternum en farangursrýmið er yfir sexhundruð lítrar. Með einu handtaki er hægt að fella aftursætin fram og auka rýmið upp í 200 lítra. Fyrst varð að kaupa nesti til ferðarinnar og upptendruð af sólarfiðringi keypti ég inn eins og fyrir fermingarveislu. Pokarnir urðu fimm og ég hefði komið fleirum fyrir, farangurshólfið á Bigsternum tók endalaust við enda 612 lítrar. Ég íhugaði að fella aftursætin fram, það er hentugur takki til þess aftur í farangursrýminu, og fá þannig rétt tæpa 2000 lítra pláss en ég stillti mig um að kaupa meira. Þetta mikla farangursrými gleypti allan farangurinn eins og ekkert væri,svefnpoka, tjald dýnur, töskur, poka, bakpoka, gönguskó, kælibox og það þó aftursætin væru enn uppi. Tjaldinu var jafnvel ofaukið því ég gat hæglega sofið í bílnum ef ég felldi aftursætin fram. Þá var ekkert að vanbúnaði að leggja í hann. Allt mitt hafurtask til ferðarinna hvarf inn í farangursrýmið. Klippa: Farangursrými Dacia Bigster rúmar 612 lítra Kemst hátt í þúsund km á tankinum Dacia Bigster Extreme er hybrid og sameinar 1.8 l bensínvél og tvo rafmagnsmótora sem skila samtals 155 hestöflum. Dacia fullyrðir að bíllinn aki allt að 80% af tímanum á rafmagni og eyði um 4,6 lítrum á hundraði og ég eigi að komast hátt í þúsund kílómetra á tankinum, við bestu aðstæður. Hvað ætli hringvegurinn sé langur? Það var sól og blíða á öllu landinu, ég gæti farið hvert sem er. Ég rúllaði af stað, beygði til hægri, austur fyrir fjall. Bigsterinn er alvöru jeppi, með rétt um 22 sm veghæð og langur eða 4570 mm á lengd, 2069 mm á breidd. Ég var á sjálfskiptum Extreme, framdrifnum en Bigster kemur einnig fjórhjóladrifinn en þá beinskiptur, Mild hybrid. Dráttargeta Bigster Extreme er hátt í eitt og hálft tonn, ef ég skyldi vilja draga á eftir mér kerru, fellihýsi, hjólhýsi nú, eða bát! Á toppnum eru langbogar svo ef tvöþúsund lítra farangursrýmið og kerran er ekki nóg gæti ég fest box á toppinn líka. Dacia Bigster tekur sig frekar vel út á íslenskum vegum. Lipur en læðist upp í hundrað Hann rann nokkuð ljúflega. Sólarfiðringurinn keyrði ferðagleðina áfram og við liðum um sveitirnar. Ekki á fleygiferð samt. Bigsterinn er ekkert kvartmíluskrímsli heldur rennir sér mjúklega upp í hundrað á hátt í tíu sekúndum. Og það var líka bara fínt, það á ekkert að flýta sér á ferðalögum. Mér fannst hann einstaklega léttur í stýri, ég gat hreinlega snúið stýrinu með litla putta, en ég gerði það auðvitað ekki. Auk þess sem hliðlarlínuskynjararnir héldu mér við efnið. Bigsterinn minnti mig líka strangur á að „keep control“ ef ég var að föndra eitthvað full mikið við skjáinn. Sem ég þurfti reyndar ekki að gera, skjárinn er tiltölulega einfaldur og helstu skipanir eru gerðar með klassískum tökkum fyrir neðan skjáinn eða í stýrinu. Mjög gott. Miðaldra ég var sérstaklega ánægð með auðvelt aðgengi og einfaldan stjórnskjá. Bigsterinn er alvöru jeppi, með rétt um 22 sm veghæð og langur eða 4570 mm á lengd, 2069 mm á breidd. Topplúgan stillir sólarkvíðann Það er þó stutt milli sólarfiðrings og sólarkvíða. Við þekkjum þetta öll, ekki ein sekúnda af sólargeislum má fara til spillis þegar loksins kemur gott veður á Íslandi og ég fann sólarkvíðann heltaka mig, ég var að missa af sólinni sytjandi inni í bíl en þá ýtti ferðafélagi minn á takka og renndi frá risastórum þakglugganum. Annar takki opnaði topplúguna og sólskinið streymdi inn í bílinn. Topplúga kemur skemmtilega á óvart í þessum bíl sem er annars svo praktískur. Glerþakið er stórt og opnar rýmið að innan svo um munar. Topplúgan hleypti góða veðrinu inn í bílinn þegar sólarkvíðinn gerði vart við sig. Plássið, glerþakið og einfaldleikinn Það sem stendur upp úr eftir ferðina er hvað bíllinn er allur plássmikill og opinn. Þetta er fullkominn ferðabíll fyrir barnafjölskyldur, t.a.m. opnast afturdyrnar vel upp á gátt, en líka fyrir fullorðna að ferðast saman því hann er svo rúmgóður bæði frammi í og aftur í. Ég sá fyrir mér veiðiferðir, golfferðir og bústaðaferðir með vinum. Nóg pláss fyrir farangur og græjur og vel færi um alla á leiðinni. Meira að segja hægt að kæla drykkina milli sæta. Þakglugginn opnar verulega á rýmistilfinninguna aftur í og virkilegur lúxus að geta opnað topplúguna í þessum sjaldséðu hitatölum, topplúgum fylgir líka alltaf einhver stuð stemmingin, er það ekki? Milli sætanna er hægt að halda drykkjum köldum á langri ferð. Ég drakk appelsínið. Það sem mætti setja út á er að mér fannst full mikið vegahljóð berast inn. Það getur verið þreytandi, sérstaklega ef farið er um malarvegi og torfærur sem maður gerir einmitt á svona bíl því hann er trukkur. Símahaldarinn er vel staðsettur í mælaborðinu fyrir ökumann en, þegar síminn var ekki í haldaranum fannst mér hann hristast dálítið til. Farþeganum fannst vanta handfangið fyrir ofan hliðargluggann, það er svo mikil ferðastemming að láta höndina hanga í handfanginu, en mögulega er hægt að sérpanta það. Bigsterinn er frábær ferðabíll með miklu geymslurými. Bigsterinn er ekki lúxusjeppi enda þykist hann ekki vera það. Það að skipanirnar eru ekki allar í snertiskjánum heldur eru klassískir takkar þar fyrir neðan skjáinn til að stilla það helsta. Það fannst miðaldra mér vera kostur, ég á það til að týnast í stjórnskjánum. Hönnunin er líka mjög praktísk. Plastið neðst á stuðaranum er úr endurunnu plasti og litað í gegn og yrjótt svo rispur eða steinkast hafa ekkert að segja. Ég sætti mig við að ekkert nudd væri í sætum því þau voru merkilega þægileg og hægt að stilla stuðning við mjóbakið í ökumanssætinu. Svo er eitt dálítið sneddí við þennan bíl. Það er hægt að bæta á hann allskonar litlum aukahlutum eins og snaga og herðatré, spjaldtölvuhaldara, geymsluvasa og fleiru. Héldu sig við áreiðanlega og einfalda hönnun Sumir vilja meina að lítil framþróun hafi háð Dacia vegna einangrunar og þegar kommúnisminn féll hafi Dacia átt erfitt með að keppa við nútímalegri bíla, þar til Renault kom inn í myndina. Áreiðanleiki, einfaldleiki og hagkvæmni hafa samt haldist sem aðalsmerki Daca og öðrum látið eftir að eltast við hátækni og lúxus. Og er það ekki allt sem þarf, sérstaklega við íslenskar aðstæður? Verðið er frábært en fyrir rétt rúma sex og hálfa milljón fæst flottur topplúgu-jeppi sem kemst yfir fjöll og firnindi, rúmar alla ferðafélagana og heldur drykkjunum köldum.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Neytendur Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Topp fimm tólin í verkfærakistuna Samstarf Fleiri fréttir Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira