Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Atli Ísleifsson skrifar 13. maí 2025 14:21 Tryggvi Björn Davíðsson er framkvæmdastjóri indó. Hann segir að félagið hafi haldið áfram að vaxa hraðar en björtustu vonir gerðu ráð fyrir. Tap ársins hjá Indó nam tæpum 281 milljón króna á síðasta ári en var tæplega 327 milljónir árið á undan. Virkir kortanotendur hjá Indó voru rúmlega 57 þúsund í lok síðasta árs og fjölgaði þeim um 66 prósent á milli ára. Þá jókst kortaveltan um 136 prósent á síðasta ári.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að áframhaldandi vöxtur og mikil tryggð viðskiptavina gefi tækifæri til að flýta innleiðingu á nýjungum og auknu lánaframboði. Ör tekjuvöxtur verði til þess að indó mun skila jafnvægi í rekstri mun fyrr en áætlað var og hraðar en aðrir áskorendabankar í Evrópu. „Tap ársins 2024 nam tæpum 281 milljón króna en var tæplega 327 milljónir árið á undan. Efnahagsreikningur indó stækkaði hins vegar verulega á síðasta ári, eignir jukust úr 13,1 milljarði í 23,4 milljarða. Innlán viðskiptavina nær tvöfölduðust og voru tæpir 22 milljarðar í lok árs mv. 11,5 milljarða árið á undan. Þetta veitir indó mikilvægt svigrúm til að auka útlán jafnt og þétt í náinni framtíð,“ segir í tilkynningunni. Innlán tæplega tvöfölduðust Haft er eftir Tryggva Birni Davíðssyni, framkvæmdastjóra Indó, að félagið hafi haldið áfram að vaxa hraðar en björtustu vonir gerðu ráð fyrir. „Innlán tæplega tvöfölduðust á síðasta ári, sem gerir okkur kleift að auka framboð á útlánum hraðar og fyrr en við gerðum ráð fyrir. Það sem skiptir samt mestu máli er það hversu mörg líta á indó sem sinn aðalviðskiptabanka. Þetta sýnir að fólk treystir okkur og kann að meta þjónustuna sem við veitum. Þetta er mikilvægur grunnur að góðum rekstri. Við ætlum að bjóða fleiri indóum einföld lán án bullgjalda og auka vöruframboðið jafnt og þétt til að svara hefðbundnum fjármálaþörfum fjölskyldna á Íslandi. Áskorendabankar sem við höfum horft til í öðrum löndum hafa yfirleitt þurft a.m.k. 7-10 ár til að ná jafnvægi í rekstri. Miðað við stöðuna nú mun það gerast mun fyrr hjá okkur en um leið erum við í kjörstöðu til að umbylta bankaþjónustu fyrir íslensk heimili. Indóar spöruðu 922 milljónir í bullgjöld á síðasta ári, Íslendingar gætu hins vegar samkvæmt okkar útreikningum sparað um 10 milljarða í óþörf gjöld og þóknanir á ári svo það er nóg svigrúm til að gera betur,” segir Tryggvi Björn. Kortavelta jókst um 136 prósent Í tilkynningunni segir að notkun á þjónustum indó sýni mikla fjölgun viðskiptavina sem nýti indó á degi hverjum. „Kortavelta jókst um 136% á síðasta ári, sem er umtalsvert umfram fjölgun indóa. Viðskiptavinir greiddu samtímis tæplega 600.000 kröfur í indó appinu á síðasta ári. Á þessu ári stendur til að auka jafnt og þétt vöruframboð til að mæta kröfum fleiri og ólíkra viðskiptavina. Á árinu hefur indó þegar kynnt m.a. dúett sem gerir pörum og öðrum kleift að hafa sameiginleg fjármál. Sjálfvirkar millifærslur, beingreiðslur og betri yfirsýn yfir útgjöld heimilisins er meðal nýjunga sem eru rétt handan við hornið. Framundan er svo aukið aðgengi að útlánum og nýjum lánavörum sem munu jafnframt styrkja tekjugrunn indó. Þá stendur til að bjóða sameiginlegan sparnað fyrir pör og vini auk þess sem vöruframboð indó er í stöðugri þróun í öflugu samtali við viðskiptavini. Markmið indó er að breyta bankakerfinu til hins betra svo meira verði eftir handa venjulegu fólki og minna fari til bankanna. 38% Íslendinga nefna nú indó sem fyrsta val í bankaþjónustu, fleiri en nefna nokkuð annað fjármálafyrirtæki. Viðtökurnar hafa því verið framar öllum væntingum,“ segir í tilkynningunni.
Fjármál heimilisins Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira