Leikmaður Palace vann tvær og hálfa milljón á skákmóti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2025 11:01 Eberechi Eze fagnar eftir að Crystal Palace tryggði sér sæti í úrslitum ensku bikarkeppninnar. getty/Mike Egerton Eberechi Eze er fleira til lista lagt en að spila fótbolta. Hann er nefnilega naskur skákmaður og vann sér inn rúmlega tvær og hálfa milljón fyrir sigur á móti á netinu á dögunum.
Síðustu dagar hafa verið gjöfulir fyrir Eze. Um síðustu helgi skoraði hann í 3-0 sigri Crystal Palace á Aston Villa í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Skömmu síðar vann hann svo sigur á skákmóti á netinu þar sem tólf samfélagsmiðlastjörnur og íþróttamenn leiddu saman hesta sína. Fyrir sigurinn á mótinu, sem stóð yfir í fjóra daga, fékk Eze fimmtán þúsund pund, eða rúmlega 2,5 milljón íslenskra króna. Eze smitaðist af skákáhuganum eftir að Michael Olise, fyrrverandi samherji hans hjá Palace, kenndi honum að tefla. Eze og félagar í Palace fá Nottingham Forest í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Í vetur hefur Eze skorað níu mörk og gefið ellefu stoðsendingar í 38 leikjum fyrir Palace í öllum keppnum. Palace keypti hinn 26 ára Eze frá QPR fyrir fimm árum. Hann hefur leikið tíu leiki fyrir enska landsliðið og skorað eitt mark.
Enski boltinn Skák Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira