Fjórði sigur Úlfanna í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jörgen Strand Larsen hefur skorað í síðustu fjórum deildarleikjum Wolves.
Jörgen Strand Larsen hefur skorað í síðustu fjórum deildarleikjum Wolves. getty/Wolverhampton Wanderers

Wolves vann 4-2 sigur á Tottenham þegar liðin áttust við á Molineux í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fjórði sigur Úlfanna í röð.

Wolves er komið upp í 16. sæti deildarinnar og er nú aðeins tveimur stigum á eftir Spurs sem er í 15. sætinu.

Leikurinn var aðeins tveggja mínútna gamall þegar Rayan Aït-Nouri kom Úlfunum yfir. Sjö mínútum fyrir hálfleik skoraði Djed Spence sjálfsmark og Wolves leiddi 2-0 í hálfleik.

Mathys Tel minnkaði muninn á 59. mínútu en aðeins fimm mínútum síðar jók Jörgen Strand Larsen muninn aftur í tvö mörk þegar hann skoraði með skoti af stuttu færi eftir sendingu frá Aït-Nouri.

Larsen hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skorað í fjórum leikjum í röð. Hann er fyrsti leikmaður Wolves sem afrekar þetta síðan Henri Camara gerði það tímabilið 2003-04.

Richarlison minnkaði muninn í 3-2 með skallamarki á 85. mínútu en aðeins mínútu síðar kom Matheus Cunha Wolves aftur tveimur mörkum yfir.

Fleiri urðu mörkin ekki og Úlfarnir fögnuðu góðum sigri.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira