Trump boðar „stórfellda“ tolla á lyf en Róbert hefur ekki áhyggjur Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. apríl 2025 17:10 Trump ætlar að hækka tolla á innflutt lyf sem hafa hingað til verið undanskilin tollum. Róbert Wessman hefur ekki miklar áhyggjur af stöðu Alvotech vegna þess. Vísir/Vilhelm/EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að bráðum yrðu settir „stórfelldir“ tollar á innflutt lyf til landsins. Forstjóri Alvotech segist ekki hafa áhyggjur af hækkun tolla, söluaðili Alvotech myndi bera kostnaðinn sem hlytist af þeim. „
Við ætlum að tilkynna mjög bráðlega talsverðan toll á lyf,“ sagði Trump á fjáröflunarkvöldverði fyrir þingmenn Repúblikanaflokksins í gærkvöldi. „Og þegar þeir heyra það, munu þeir fara frá Kína. Þeir munu yfirgefa fleiri staði því þeir þurfa að selja, meirihluti vara þeirra er seldur hér og þeir munu opna verksmiðjur sínar út um allt.“ Innlend lyfjaframleiðsla hefur skroppið saman á síðustu áratugum og hefur flest framleiðla á virkum lyfjaefnum flust til annarra landa á borð við Kína og Indland, samkvæmt matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA). Söluaðilar Alvotech myndu bera kostnað af hækkun tolla Trump tilkynnti tíu prósenta toll á flest ríki heims fyrir viku síðan og bættust fleiri tollar við í dag, þar á meðal 104 prósenta tollur á kínverskar vörur. Lyf hafa hins vegar verið undanskilin tíu prósenta tollinum og gagnkvæmum verndartollum. „Það hafa vanalega ekki verið tollar á lyf og það hefur verið samkomulag um það á milli landa enda eru sennilega 80% af öllum lyfjum í Bandaríkjunum, samkvæmt magni, annaðhvort samheitalyf eða lyf sem eru innflutt,“ sagði Róbert Wessman, forstjóri Alvotech, í samtali við Viðskiptablaðið. Eftir langt umsóknarferli fékk Alvotech í fyrra markaðsleyfi fyrir tvær lyfjatæknihliðstæður, adalimumab (hliðstæðu Humira) og ustekinumab (hliðstæðu Stelara). Ekki liggur fyrir hvort tollarnir leggist á frumlyf eða hliðstæðulyf eða hvort tveggja. Róbert taldi að tollahækkanir á lyfjaiðnað myndu leiða til verulegs lyfjaskorts ef innflutningur drægist saman. „Við fórum í gegnum þetta og reiknuðum að 10% tollur á vörur Alvotech, þ.e.a.s. lyf sem eru algjörlega framleidd á Íslandi, myndi leiða til rúmlega 4% hækkunar á útsöluverði og þá væri það okkar söluaðili sem flytur það inn sem myndi bera þann kostnað,“ sagði Róbert við Viðskiptablaðið. Taldi hann að önnur hliðstæðulyf flutt inn til Bandaríkjanna myndu lenda í hærri tollaflokki en Alvotech þar sem meirihluti hliðstæðulyfja kemur frá Asíu. „Ég hef ekki áhyggjur af stöðu Alvotech þegar kemur að tollunum. Við erum með 28 lyf í þróun og verðum fyrsta hliðstæðufyrirtækið til að setja þrjú lyf á markað á einu ári. Þar að auki er ekkert fyrirtæki til í heiminum sem er með jafn mörg lyf í þróun og við,“ sagði Róbert við Vb. Þá taldi hann núverandi markaðsókyrrð meira áhyggjuefni fyrir hluthafa frekar en rekstraraðila. Alvotech skilaði enn sterkri afkomu og verðbreytingar markaðsins endurspegli engan veginn verðmæti félagsins.
Bandaríkin Alvotech Skattar og tollar Lyf Donald Trump Mest lesið Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Viðskipti innlent Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Viðskipti erlent Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Viðskipti innlent Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Viðskipti innlent Félögin þeirra högnuðust mest Viðskipti innlent Hvernig bý ég mig undir barneignir? Viðskipti innlent Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Viðskipti innlent Gagnrýna að seljendur og verktakar þurfi einir að lækka verð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Segir engan óhultan ef gervigreindarbólan springur Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ PlayStation 5 slær Xbox 360 við Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Jensens Bøfhus lokað Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Græða á tá og fingri á svikum og prettum Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Sjá meira