Settu met sem enginn vill eiga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. apríl 2025 11:32 Allt bendir til þess að Leicester City falli úr ensku úrvalsdeildinni. getty/Alex Pantling Leicester City setti met sem enginn vill eiga þegar liðið tapaði 0-3 fyrir Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Leikurinn á King Power leikvanginum var aðeins tveggja mínútna gamall þegar Jacob Murphy kom Newcastle yfir. Hann bætti öðru marki við á 11. mínútu og Harvey Barnes skoraði svo þriðja mark gestanna á 34. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og Skjórarnir fögnuðu öruggum sigri. Leicester hefur nú tapað átta heimaleikjum í röð án þess að skora. Það hefur ekkert lið í fjórum efstu deildunum á Englandi gert. Árangur Leicester á heimavelli á tímabilinu er vægast sagt afleitur. Liðið hefur aðeins unnið tvo af sextán deildarleikjum sínum á King Power, gert þrjú jafntefli og tapað ellefu. Leicester hefur ekki skorað á heimavelli í 720 mínútur, eða síðan 8. desember á síðasta ári. Leicester hefur tapað fimmtán af síðustu sextán leikjum sínum og fallið blasir við Refunum. Þeir eru með sautján stig í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar, fimmtán stigum frá öruggu sæti þegar sjö umferðir eru eftir. Southampton féll á sunnudaginn og Ipswich Town er einnig í afar erfiðri stöðu, tólf stigum frá öruggu sæti. Því bendir allt til þess að allir þrír nýliðarnir falli strax aftur niður í B-deildina. Steve Cooper var rekinn frá Leicester í lok nóvember og við starfi hans tók Ruud van Nistelrooy. Hann hefur stýrt Leicester í tuttugu deildarleikjum en í þeim hefur liðið aðeins fengið ellefu stig.
Enski boltinn Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira