„Eins óheiðarlegt og óíþróttamannslegt og hugsast getur“ Sindri Sverrisson skrifar 24. mars 2025 09:37 SR vann SA 3-0 í febrúar en var svo dæmt 10-0 tap vegna markvarðar sem reyndar kom ekki við sögu í leiknum. Mynd/SR/Hafsteinn Þorsteinsson Skautafélag Reykjavíkur sakar Fjölni um að „kæra sig inn í úrslit“ Topp-deildar karla í íshokkí og ætlar að svara fyrir með því að kæra úrslit leikja hjá Fjölnismönnum sem „kasti steinum úr glerhúsi“.
Íshokkísamband Íslands kom til fundar í gær og ákvað að fresta fyrsta leik í úrslitakeppni karla í ár, frá 29. mars til 5. apríl, vegna algjörrar óvissu sem nú ríkir um stöðuna í Topp-deildinni. Íshokkísamband Íslands kom til fundar í gær og ákvað að fresta fyrsta leik í úrslitakeppni karla í ár, frá 29. mars til 5. apríl, vegna algjörrar óvissu sem nú ríkir um stöðuna í Toppdeild karla. Kærði leik sem liðið tók ekki þátt í Málið snýst um það að Dómstóll ÍSÍ hefur nú dæmt SR 10-0 tap gegn SA, í leik sem SR hafði unnið 3-0 þann 22. febrúar. Það var ekki SA sem kærði leikinn heldur Fjölnir sem þar með tekur að óbreyttu sæti SR í úrslitaeinvígi við SA um Íslandsmeistaratitilinn. Samkvæmt frétt á vef SR kærði Fjölnir úrslitin á þeim forsendum að SR hefði notast við ólöglegan leikmann, markvörðinn Conor Hugh White, og verið með þrjá markverði á rafrænni leikskýrslu þegar aðeins má hafa tvo. Á vef SR segir að White hafi ekkert komið við sögu í leiknum, leikheimild fyrir hann hafi komið seint og mannleg mistök valdið því að þrír markverðir væru á rafrænni leikskýrslu en að strikað hefði verið yfir þriðja markvörð á útprentuðum liðslista sem fulltrúar beggja liða kvittuðu undir. Þetta hafi áður tíðkast hjá öllum félögum þegar breytingar verði rétt fyrir leiki. „Þetta er eins óheiðarlegt og óíþróttamannslegt og hugsast getur af hálfu Fjölnis því SR endaði 3 stigum fyrir ofan í deildarkeppninni og hafði því betur inn á ísnum í baráttunni um sæti í úrslitum. Eina leiðin sem Fjölnir sér til að komast í úrslit er að kæra leik sem þeir voru ekki einu sinni þátttakendur í vegna leikheimildar sem ÍHÍ gaf formlega út,“ segir á vef SR og einnig: „Hér er SR refsað grimmilega fyrir mistök við afgreiðslu leikheimildar hjá ÍHÍ sem SR bar enga ábyrgð á. SR fékk leikheimild og nýtti í góðri trú en sú leikheimild byggði á fyrra fordæmi sem einmitt Fjölnir fékk fyrir markvörð fyrir þremur árum. Hentuglega eru þeir á móti samskonar afgreiðslu núna.“ Ætla að kæra úrslit leikja hjá Fjölni Ljóst er að SR-ingar ætla ekki að una þessu. Þeir hafa nú frest til að áfrýja dómi Dómstóls ÍSÍ en ætla sér líka að kæra Fjölnismenn vegna fyrri leikja. Kærufrestur sé vissulega liðinn en að nú séu „sérstakar ástæður“ fyrir hendi þar sem dómur ÍSÍ sýni að það sem áður þótti samþykkt sé ólöglegt. „Ef Fjölni er svona umhugað um lög og reglur er áhugavert að skoða þeirra eigin leiki í vetur. Þar er ýmislegt áhugavert að finna. Í tveimur leikjum Fjölnis gegn SFH, 4. og 18. október s.l., tefldi Fjölnir fram leikmanni á 14. aldursári en samkvæmt reglugerð ÍHÍ nr. 13 um Íslandsmót segir: „Leikmenn sem spila með meistaraflokki karla þurfa að ná 15 ára aldri á árinu sem spilað er á…“ Fjölnir sigraði báða leiki en með ólöglegan leikmann innanborðs. Ef nýliðinn dómur ÍSÍ fær að standa er ljóst að fordæmið sem leikheimild til SR byggði á er líka ólöglegt. Þar af leiðandi er og hefur téður markvörður Fjölnis verið ólöglegur leikmaður í þrjú tímabil. Á síðustu leiktíð var hann 12 sinnum á leikskýrslu. Á þessu tímabili var hann einu sinni á leikskýrslu en það var einmitt leikur gegn SR sem Fjölnir sigraði 5-4 í Skautahöllinni í Laugardal 7. janúar s.l. SR hefur ákveðið að kæra viðkomandi leiki og fara fram á að Fjölni verði dæmdur 0-10 ósigur í þeim öllum. Vissulega er kærufrestur liðinn en í lögum ÍSÍ segir í lið 24.2: „Dómstóll ÍSÍ getur veitt leyfi til að mál sé höfðað eftir að kærufrestur er liðinn ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.“ Það verður ekki annað séð en að með úrskurði dómstóls ÍSÍ um helgina hafi orðið til þessar sérstöku ástæður enda skipta öll stig máli og Fjölnir að kæra leik vegna meints ólöglegs leikmanns þegar þeir hafa í að minnsta kosti þremur leikjum tímabilsins gerst sekir um þá háttsemi sjálfir. Í 3. gr. reglugerðar ÍHÍ nr. 3 um viðurlög við notkun ólöglegra leikmanna er m.a. kveðið á um að við ítrekuð brot skuli viðkomandi félag dæmt til fjársekta og því vísað frá keppni í allt að 6 mánuði eftir eðli málsins,“ segir á vef SR. Þar er einnig bent á að nú sé algjörlega óvíst að búið verði að leiða málið til lykta og krýna Íslandsmeistara áður en karlalandslið Íslands fer til keppni á HM í lok apríl.
Íshokkí Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Fleiri fréttir Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Man. City - West Ham | Bláklæddir geta tyllt sér á toppinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Joshua kjálkabraut Paul KA-menn fengu góða jólagjöf Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Immobile skaut Bologna í úrslit Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Tryllti lýðinn og ærði andstæðinginn Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt Sjá meira
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum