Sjáðu mörkin sem tryggðu Val Lengjubikarinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. mars 2025 16:22 Sigurður Egill Lárusson skoraði sigurmark Vals í Árbænum. vísir/diego Valur varð í dag Lengjubikarmeistari karla eftir 2-3 sigur á Fylki á Würth vellinum í Árbænum í dag. Fylkismenn komust í 2-0 en Valsmenn sneru dæminu sér í vil.
Fylkir, sem féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabili, hefur komið á óvart í Lengjubikarnum og sló KR út í undanúrslitunum. Fylkismenn mættu ákveðnir til leiks gegn Valsmönnum í dag og náðu forystunni á 12. mínútu. Guðmundur Tyrfingsson skoraði þá laglegt mark með skoti í slá og inn. Níu mínútum síðar jók Benedikt Daríus Garðarsson muninn í 2-0 eftir sendingu frá Emil Ásmundssyni. Aðeins tveimur mínútum síðar minnkaði gamli Fylkismaðurinn Orri Hrafn Kjartansson muninn í 2-1 eftir samspil við Albin Skoglund. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. Valsmenn jöfnuðu á 82. mínútu þegar Patrick Pedersen nýtti sér vandræðagang í vörn Fylkismanna og skoraði sitt níunda mark í Lengjubikarnum. Aðeins tveimur mínútum síðar sendi Jónatan Ingi Jónsson boltann fyrir mark Fylkis og varamaðurinn Sigurður Egill Lárusson skoraði þá af harðfylgi og kom Val í 2-3. Klippa: Fylkir 2-3 Valur Fylkismenn voru nálægt því að jafna undir lokin en Hólmar Örn Eyjólfsson bjargaði á línu. Skömmu síðar flautaði Ívar Orri Kristjánsson til leiksloka og Valsmenn fögnuðu sigri í leiknum og í Lengjubikarnum. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Valur fær Vestra í heimsókn í 1. umferð Bestu deildinni sunnudaginn 6. apríl. Fylkir sækir Njarðvík heim í 1. umferð Lengjudeildarinnar föstudaginn 2. maí.
Lengjubikar karla Fylkir Valur Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira