Þjálfari Hákons grét eftir leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 10:03 Davide Ancelotti var tilfinningasamur eftir sigurleik Lille um helgina. AP/Jean-Francois Badias Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille unnu nágrannaslaginn á móti Lens í frönsku deildinni um helgina og það var mjög tilfinningarík stund fyrir þjálfara liðsins.
Þjálfari Lille er Davide Ancelotti, sonur hins eina sanna Carlosar, og hann sleppti af sér beislinu þegar Oliver Giroud skoraði sigurmarkið undir lokin. Ancelotti er þekktur fyrir ró og yfirvegun eins og faðir hans en þetta var stund til að missa sig í fögnuðinum. Það vakti enn meiri athygli þegar Ancelotti mætti svo rauðeygður á blaðamannafundinn eftir leikinn og viðurkenndi að hafa grátið. Spennuþrungnir dagar „Þetta var leikur fullur af tilfinningum,“ útskýrði hinn 37 ára gamli þjálfari, sem hafði gengið í gegnum nokkra spennuþrungna daga. Það var fyrst og fremst vegna Meistaradeildarinnar, þar sem Lille er enn án stiga. Fyrir vikið fór fyrsta gagnrýnin einnig að birtast í frönskum fjölmiðlum á þjálfarann, sem, auk þess að bera frægt eftirnafn, þarf að takast á við hugsanlegar efasemdir sem tengjast fyrsta stjórastarfi hans í Evrópu, eftir stutta dvöl hjá Botafogo í Brasilíu. Á meðan hefur Lille þó haldið í við efstu lið frönsku deildarinnar. Þetta var fyrsti grannaslagur Ancelottis með Lille og hann fór ef til vill örlítið spenntur inn í leikinn. Þess vegna fagnaði Ancelotti eins og harðasti stuðningsmaður þegar Giroud skoraði sigurmarkið á 86. mínútu. Þetta er svolítið í genunum Þegar flautað var til leiksloka í einhliða leik leyndi þjálfarinn ekki nokkrum tárum: „Ég er bara svona,“ sagði hann við fjölmiðla eftir leikinn. „Þetta er svolítið í genunum, í okkar fjölskyldu grátum við mikið. Og þegar tilfinningarnar eru miklar endum við rauðeygð. Og það voru tilfinningar, fyrir sérstakan leik, fyrir alla. Leikmennirnir áttu sigurinn skilinn því þeir leggja hart að sér, þetta er góður hópur, og þess vegna var ég líka mjög tilfinningaríkur í lokin,“ sagði Ancelotti. Lille er í öðru sæti deildarinnar á eftir PSG og leikur á miðvikudaginn á höttunum eftir fleiri gleðitárum í Meistaradeildinni, á útivelli gegn Bodö/Glimt. 🗣️💬 "C'est génétique ! On est comme ça dans la famille, on pleure beaucoup quand il y a de l'émotion." Davide Ancelotti raconte sa joie extatique après la victoire du LOSC dans le derby du Nord face à Lens. https://t.co/edUfAZnuIJ— RMC Sport (@RMCsport) October 31, 2026
Franski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira