Sjónvarpsbannið í enska boltanum pirrar prinsinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2025 12:00 Vilhjálmur Englandsprins verður næsti kóngur Englands þegar faðir hans Karl Englandskóngur fellur frá. AFP/Kin Cheung Vilhjálmur Englandsprins er harður stuðningsmaður fótboltaliðsins Aston Villa en það er stundum erfitt fyrir hann að sjá leiki liðsins vegna sjónvarpsbannsins í enska boltanum.
Það er engin slík regla á Íslandi eða utan Englands en á Englandi þá mega ensku sjónvarpsstöðvarnar ekki sýna frá leikjunum í ensku úrvalsdeildinni sem byrja klukkan þrjú. Sjónvarpsbannið pirrar prinsinn en það hefur verið í gildi síðan á sjöunda áratugnum og var sett til að sjónvarpsleikirnir komi ekki niður á aðsókn leikjum í neðri deildum enska boltans. Aston Villa er fornfrægt félag en ekki eitt af þeim vinsælustu. Leikir liðsins eru því oft ekki færðir til vegna sjónvarpsútsendinga og spilar Villa liðið því oft klukkan þrjú. „Það er ekki það auðveldasta fyrir mig að komast á Villa Park en ég reyni að horfa að sem flesta leiki liðsins í sjónvarpinu,“ sagði Vilhjálmur Englandsprins en ESPN segir frá. „Það er stundum erfitt að finna leiki Aston Villa í sjónvarpinu og svo erum við auðvitað með sjónvarpbannið á leikjum klukkan þrjú sem pirrar mig,“ sagði Vilhjálmur. „Það er virkilega pirrandi að geta ekki horft á þessa þrjú leiki hér í Englandi en svo getur þú farið erlendis og séð alla þessa leiki,“ sagði Vilhjálmur. Aston Villa er að gera góða hluti á þessu tímabili, komst í Meistaradeildina í ár og í vikunni tryggði liðið sig áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Aðeins Arsenal og Aston Villa komust þangað af ensku liðunum. Prince William: PL 3 p.m blackout is 'irritating'Prince William has said he finds the 3 p.m blackout rule "irritating" and is a hindrance to his Aston Villa fandom.https://t.co/OfIv9P3WcZ— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) March 14, 2025
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Stofnandi LIV segir skilið við mótaröðina Sport Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira