Stórafmælið hefur afleiðingar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. mars 2025 14:52 Sigmundur Davíð heldur í hefðir á afmælisdaginn og kom sér heldur betur vel fyrir. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er fimmtugur í dag. Hann segir það hafa afleiðingar, því nú er hann á leið í smá frí og tekur varaþingmaður sæti hans á þingi á meðan. Hann segist ekki vera búinn að ákveða hvert hann ætli, finnst þetta undarleg tímamót en segir að nú gefist sér tími í bókaskrif.
Sigmundur birti færslu um afmælið á samfélagsmiðlum en hann var í óðaönn við að horfa á Back to the Future þegar Vísir náði af honum tali. Á samfélagsmiðlum segir Sigmundur að hann hafi haft það að meginmarkmiði í sextán ár að standa við loforð gagnvart kjósendum. Nú sé komið að því að standa við loforð gagnvart fjölskyldunni. Hann segir að mýsnar gætu viljað nýta tækifærið til að leika sér á meðan kötturinn sé í burtu en Sigmundur tekur fram að margir kettir muni standa vaktina á meðan. Ágústa Ágústsdóttir varaþingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi tekur sæti Sigmundar á meðan hann er í fríi. Sindri Sindrason skellti sér í morgunkaffi til Sigmundar í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga í Íslandi í dag. Í hlýjum faðmi Marty McFly og Emmett „Doc“ Brown „Ég er að halda í hefðir og horfa á Back to the Future,“ sagði Sigmundur eftir hádegi þegar Vísir náði af honum tali. Hann segir það lengi hafa verið hefð að horfa á stórmynd Robert Zemeckis á afmælisdaginn. „Svo hefur það líka alltaf verið hefð hjá mér að horfa á nokkra þætti af Jeeves and Wooster og svo gríp ég oft í myndirnar um Olsen gengin, sem eru gamlar danskar grínmyndir,“ útskýrir Sigmundur fyrir eilítið yngri blaðamanni. Hann segir deginum eytt í rólegheit heima en svo fer fjölskyldan út að borða í kvöld. Þau stefna svo á að skreppa til útlanda, en hvert? Hugh Laurie og Stephen Fry fara með aðalhlutverkin í Jeeves and Wooster. Stokkhólmur í myndinni „Hluti af ástæðunni fyrir því að ég er ekki farinn, er sá að ég er ekki alveg búinn að ákveða hvert. En ég hallast að Munchen. Mig langar að fara til borgar sem er gaman að rölta um, því nú þarf maður að hreyfa sig. Ég ætla að reyna að ná fimmtán kílómetra af göngu á dag og það er gaman að gera það í fallegri borg.“ Sigmundur segist hafa skoðað landakort og fyrst fengið Kaupmannahöfn upp í hugann. Hann hafi hinsvegar farið þangað býsna oft og það sama eigi við um London og Oxford. „Svo er Stokkhólmur inni í myndinni líka. Ég þarf að komast að niðurstöðu,“ segir Sigmundur sem segist ekki oft kaupa sér miða til útlanda með svo skömmum fyrirvara. „Það er svo margt sem maður ætlar að vera búinn að gera fyrir afmælið. En svo náðist ekki allt saman og þetta er eitt af því.“ Síðasta afmæli var 36 ára afmælið Sigmundur segist spurður ekki trúa því að hann sé orðinn fimmtugur. Honum líði í raun mjög undarlega með þetta. „Ég er líklega ennþá í afneitun. Það getur reynst best að ímynda sér að þetta sé ekki. Síðast þegar ég vissi þá var ég að hafa áhyggjur af því að ég átti 36 ára afmæli. Þá áttaði ég mig á því að ég yrði aldrei atvinnumaður í fótbolta úr því og var þá orðinn jafngamall og Homer Simpson, sem er víst 36 ára. Svo er James Bond reyndar 36 ára líka,“ segir Sigmundur hlæjandi. „Þetta finnst mér að hafi verið síðasta afmælið mitt. Svo var ég bara allt í einu orðinn fimmtíu. Ég vara ykkur unga fólkið við, eins og gamla fólkið sagði alltaf við mann, að tíminn líður bara hraðar og hraðar. Þannig notið hann vel og gerið eitthvað skemmtilegt inn á milli.“ Sigmundur segist gera ráð fyrir því að hann verði í viku erlendis. Hann eys lofi yfir þingflokk Miðflokksins og segist furðu rólegur yfir því að yfirgefa Alþingi um stund, þó aldrei sé hægt að vera alveg rólegur í þessum bransa þar sem alltaf þurfi að vera tilbúinn til þess að stökkva inn ef svo beri undir. „Ætli þetta verði ekki svona vikufrí úti og svo sé ég til þegar ég kem heim. Ég er jafnvel með þá hugmynd að komast aðeins áfram með bók sem ég var byrjaður á en hef haft lítinn tíma til að vinna í, maður gæti tekið sér nokkra daga í það,“ segir Sigmundur. Hann gefur ekkert upp um efni bókarinnar, en segir þó að ekki sé um skáldsögu að ræða. „En ég get sagt að hún hefur verið lengi í undirbúningi.“ Sigmundur mætti í Brennsluna á FM957 í fyrra í aðdraganda kosninga. Þá las hann upp ljót ummæli um sig.
Tímamót Alþingi Miðflokkurinn Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Sjá meira