Formúla 1

Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lewis Hamilton er nú kominn i rauða Ferrari búninginn og það bíða margir spenntir eftir því hvernig hann stendur sig í honum.
Lewis Hamilton er nú kominn i rauða Ferrari búninginn og það bíða margir spenntir eftir því hvernig hann stendur sig í honum. AFP/Giuseppe CACACE

Lewis Hamilton er kominn til Ferrari og það er mikill áhugi meðal formúlu 1 áhugafólks á því að sjá hvernig honum gengur þar.

Hamilton er sjöfaldur heimsmeistari en hefur ekki unnið titilinn í fimm ár. Hann er líka orðinn fertugur og einhverjir hafa kannski áhyggjur af því að hann sé bara orðinn of gamall fyrir þetta krefjandi hlutverk að keyra formúlu 1 bíl.

Hamilton kom með sitt sjónarhorn á alla slíka umræðu.

Hamilton vann vissulega tvær keppnir í fyrra þar á meðal þá á Silverstone þar sem hann endaði 945 daga bið eftir sigri.

Max Verstappen hefur tekið við stöðu Hamilton á toppnum og vann sinn fjórða heimsmeistaratitil í röð í fyrra. Verstappen er 27 ára gamall og því þrettán árum yngri en Hamilton. Hamilton er að keppa við mun yngri enn menn eins og Lando Norris (25 ára), George Russell (27 ára) og Charles Leclerc (27 ára).

„Að finnast þú vera gamall er bara sálarástand. Auðvitað eldist líkaminn þinn en ég verð aldrei gamall maður,“ sagði Hamilton í viðtali við Time tímaritið.

Hamilton var búinn að vera í tólf tímabil með Mercedes en ákvað færa sig yfir til erkifjendanna í Ferrari.

„Þú mátt ekki vera á sama stað of lengi. Ég þurfti að komast út fyrir þægindarammann aftur. Ég hélt að ég væri búinn að prófa allt í fyrsta sinn,“ sagði Hamilton.

„Fyrsti bíllinn, fyrsti áreksturinn, fyrsta stefnumótið og fyrsti skóladagurinn. Ég varð svo spenntur að vita að ég væri að fara í fyrsta sinn í rauða búninginn og fara að keppa í fyrsta sinn í Ferrari bíl,“ sagði Hamilton.

„Vá. Ég hef eiginlega aldrei verið svona spenntur áður,“ sagði Hamilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×