Sport

Ís­lands­met­hafinn segir enga virðingu borna fyrir íþrótta­fólkinu: „Út í hött“

Aron Guðmundsson skrifar
Daníel Ingi Egilsson, Íslandsmethafi í langstökki, hefur sitt hvað að segja um hugmyndir sem hafa verið viðraðar um breytingar á langstökki.
Daníel Ingi Egilsson, Íslandsmethafi í langstökki, hefur sitt hvað að segja um hugmyndir sem hafa verið viðraðar um breytingar á langstökki. Vísir/Sigurjón

„Mér finnst hún alveg út í hött,“ segir Ís­lands­met­hafi í langstökki, Daníel Ingi Egils­son, um hug­mynd sem hefur verið viðruð af Alþjóða frjálsíþrótta­sam­bandinu sem myndi valda tölu­verðum breytingum á greininni. Daníel segir enga virðingu borna fyrir íþrótta­fólkinu sjálfu.

Hug­myndir Alþjóða frjálsíþrótta­sam­bandsins snúa að því að breyta út­færslunni á stökksvæðinu sjálfu í langstökki, nánar til­tekið plankanum sjálfum. Breytingar sem myndu valda því að langstökkvararnir hefðu stærra svæði til að stökkva á.

Núverandi plankinn, sem hefur verið við lýði til fjölda ára saman­st af þrjátíu sentí­metra svæði þar sem að langstökkvarar fá tuttugu sentí­metra af hvítu svæði til þess að stökkva af til að stökkið teljist gilt. Í fram­haldi af sentí­metrunum tuttugu tekur við tíu sentí­metra svæði í öðrum lit sem er svæði sem myndi gera stökkið ógilt ef stokkið er þaðan.

Núverandi útfærsla á plankanum í langstökki

Næðu hug­myndir Alþjóða frjálsíþrótta­sam­bandsins fram að ganga yrði núverandi planka hent í burtu og við tæki fjörutíu sentí­metra stökksvæði sem langstökkvarar mættu stökkva innan til þess að fram­kvæma gilt stökk.

„Þá verða lík­legast ein­hverjir nemar í plankanum eða laser-ar sem myndu mæla frá fremsta hluta táarinnar sem fer síðast af plankanum til aftasta hlutanum sem lendir í sandinum. Þá eru þær komnir með nákvæmari mælingu á stökkinu,“ segir Ís­lands­met­hafinn í langstökki, Daníel Ingi Egils­son, sem er ekki hrifinn af hug­myndum sam­bandsins.

Svona myndi stökksvæðið líta út ef hugmyndir Alþjóða frjálsíþróttasambandsins næðu fram að ganga. Útfærslan var prófuð á móti í Dusseldorf á dögunumVísir/Getty

„Ég persónu­lega er alls ekki hlynntur þessari breytingu. Mér finnst hún í raun alveg út í hött þar sem að þú ert í rauninni að breyta greininni tölu­vert. Alþjóða frjálsíþrótta­sam­bandið er ekki að taka mikið til greina söguna á bak­við íþróttina. Þeir eru meira að hugsa um hvað áhorfandinn vill sjá, hvað verið er að biðja um í gegnum sam­félags­miðla og annað. Sem maður getur svo sem skilið miðað við hvernig sam­félagið okkar er í dag. Það er í raun engin virðing borin fyrir íþrótta­fólkinu sjálfu í þessu.“

Tekur eiginleikann frá stökkvaranum

„Frjálsar íþróttir eru búnar að vera við lýði síðan að Ólympíu­leikarnir voru stofnaðir um 1800 og eitt­hvað. Plankinn hefur verið sá sami síðan. Íþróttin okkar snýst um að hlaupa sem hraðast og taka á loft í stökkinu á þessum tuttugu sentí­metrum sem við höfum til þess að stökkva. Fegurðin við íþróttina er að ef þú getir ógilt, stígur ein­hverja tíu sentí­metra yfir og færir þig aftur um tíu sentí­metra ertu kominn með gilt stökk.

Þú ert í raun að taka eigin­leikann okkar, sem við höfum æft og þjálfað upp til margra ára, í burtu frá okkur. Því með þessum breytingum myndum við bara geta neglt á þetta og stokkið. Þú ert í raun að taka aðlögunina í burtu því við þurfum að aðlaga okkur að plankanum til að gera gilt stökk.“

Breyting sem myndi breyta tölu­verðu varðandi það hvernig Daníel Ingi og aðrir nálgast sín stökk.

„Í rauninni. þannig því þá ertu kominn með stærra svæði til þess að stökkva á heldur en núna. Því núna þarftu að vera nákvæmari á plankanum. Það eru ekkert margir sem hafa þann eigin­leika að geta verið stöðugir og nákvæmir á plankanum. Ef við horfum á stökk­seríur í keppnum keppni. Þá eru sumir að gera fjögur stökk ógild en bara tvö gild. Svo eru aðrir sem taka öll sex stökkin gild. Þá ertu strax kominn með og sérð að þessi sem er að taka sex stökk gild hefur þann eigin­leika að gera allt gilt og stökkva akkúrat á þessu tuttugu sentí­metra svæði heldur en hinn sem er búinn að gera fjögur ógild og nær bara tveimur gildum. Þetta snýst líka um það hvernig við æfum og þjálfum okkur í því að hitta á plankann.“

„Viljum ekki hafa þetta svona“

Mikið kurr hefur verið í heimi langstökkvara undan­farið vegna þessara hug­mynda en nú þegar er búið að prufu­keyra þær á tveimur innan­húss mótum. Annars vegar í Dus­seldorf og síðan í París fyrir stuttu síðan.

„Ef ég á að vera hrein­skilinn þá hef ég ekki hitt einn einasta mann vera hlynntur þessari breytingu af þeim sem að ég þekki. Það segir sig dálítið sjálft að við íþrótta­mennirnir viljum ekki hafa þetta svona því spennan í sportinu snýr meðal annars að því hvort við náum að gera gilt stökk. Auðvitað skilur maður hug­myndina út frá því sjónar­miði að þú viljir fækka ógildum stökkum en þetta hefur verið hluti af íþróttinni í þúsundir ára. Þetta er svona svipað eins og þú værir í fót­bolta og ætlar að reyna fá fleiri mörk í leikinn. Þú ákveður því að stækka mörkin. Þá ertu búinn að gera leikinn auðveldari fyrir sóknar­mennina en erfiðari fyrir mark­mennina.“

Hræddur um að af þessu verði

En nái þessar hug­myndir fram að ganga, hvað ætlar Daníel að gera þá?

„Það verður náttúru­lega erfitt að aðlagast breytingunni og maður verður náttúru­lega fúll til að byrja með. Á endanum sættir maður sig örugg­lega við þetta en þetta myndi að mínu mati drepa alla stemninguna í kringum íþróttina. Ein­hverjir hafa sagst ætla að hætta ef þetta verður gert svona. Það er aldrei að vita nema fleiri taki undir það.“

Telurðu að þessar hug­myndir verði að veru­leika?

„Ég eigin­lega bara veit það ekki. Ég er af­skap­lega hræddur um að þeir geri það. Því þeir hafa alveg farið í al­gjörar steypu breytingar í íþróttinni. Það er erfitt að segja til um það hvað þeir eiga eftir að gera.“

Viðtalið við Daníel í heild sinni má sjá hér fyrir neðan: 

Klippa: Kurr í Íslandsmethafanum sökum mögulegra breytinga

Tengdar fréttir

Fór í gegnum djúpa dali áður en hann slátraði Íslandsmetinu

Langstökkvarinn Daníel Ingi Egilsson gekk í gegnum djúpa dali meðan hann glímdi við meiðsli, en missti aldrei trúna. Hann kom sá og sigraði á Norðurlandamótinu síðustu helgi og stórbætti 20 ára gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×