Hæstaréttardómari kallar Gróu á Leiti til vitnis Heimir Már Pétursson skrifar 21. febrúar 2025 07:00 Í landinu leikur lausum hala fyrrverandi hæstaréttardómari sem hefur gert sig breiðan í umræðu á flestum sviðum þjóðlífsins. Honum hefur verið tíðrætt um að „ekki megi láta dómstól götunnar“ ráða ferðinni. Sérstaklega þegar frægir karlmenn eru sakaðir um að brjóta á konum kynferðislega eða með öðru ofbeldi. Þessi tungulipri fyrrverandi hæstaréttardómari nýtur efri áranna brakandi rogginn með sjálfan sig hripandi niður niður alls kyns athugasemdir um fólk sem hann telur hættulegt réttarríkinu. Það er heldur ekki að undra að honum líði bærilega á ævilöngum launum hæstaréttardómara. Gott ef ekki stjórnarskrárvörðum rétti hans til þeirra launa skattborgaranna fyrir göfug störf hans í þágu réttlætisins í Hæstarétti landsins. Athugasemdir á lausablöðum Dómarinn fyrrverandi hripar gjarnan hjá sér stuttar athugasemdir á lausablöð og sendir þessar hugrenningar sínar til vina sinna á málgagni auðugasta fólks landsins. Málgagns sem hefur á undanförnum árum glatað trúverðugleika sínum vegna nokkurra eiturpenna sem hirða lítið lítið um siðareglur Blaðamannafélags Íslands, hvað þá almennt siðgæði. Eitt slíkt bréfssnifsi barst ritstjórn málgagns auðugasta fólks landsins á dögunum og birtist í málgagninu á miðvikudag. Þessar athugasemdir minna á dómsorð sem birtast aftast í dómum, á eftir tugum og stundum hundruð blaðsíðna af rakningu máls og tilvitnanna í lagagreinar og dómafordæmi. En sjálfumglaði hæstaréttardómarinn fyrrverandi hirðir lítið um slíkt lítilræði. Honum dugar að hlusta á eigin rökstuðning, eigin lög áður en hann kveður upp dóma sína. Í dómi hans í málgagninu á miðvikudag kveður hann upp dóm yfir þeirri konu sem hefur barist harðar en nokkur annar á Alþingi Íslendinga fyrir hag þeirra sem verst standa í þjóðfélaginu og hafa minnst milli handanna. Fólks sem á enga potta af gulli til að gefa út málgagn með stórtapi ár eftir ár eins og miðillinn sem dómarinn birtir vitranir sínar um réttlæti. Að leggjast við neðstu skör Gróu Í þessum ákaflega ósmekklega mannorðsdómi kallar hæstaréttardómarinn aðeins til eitt vitni áður en hann sakar formann Flokks fólksins og aðra forráðamenn flokksins um að misnota sjóði flokksins sjálfri sér til framdráttar. Hæstaréttardómarinn kallar Gróu á Leiti í vitnastúkuna. Í málfarsbankanum segir vitnið um Gróu: „Í skáldsögunni Piltur og stúlka eftir Jón Thoroddsen gegnir Gróa á Leiti miklu hlutverki og svo minnisstæð er sú mynd sem skáldið dregur upp af henni að hún er fyrir löngu orðin hluti af íslensku máli og menningu, nokkurs konar tákn sögusmettunnar, sbr. einnig nafnorðið Gróusögur ‘slúðursögur’. Eftirfarandi dæmi virðist eiga að vísa til þessa: Ef menn telja að kerfið við mat og val á dómurum hér á landi sé ekki rétt þá skulu menn breyta því, ræða það af röggsemi og breyta því en ekki baknaga og leggjast við neðstu skör Gróu á leiti (1.1.08).“ Í dómsorðum hæstaréttardómarans fyrrverandi á ævilöngu dómaralaununum segir hann án þess að blikkna: “Fram hafa komið opinberlega tilgátur um að fyrirsvarsmenn Flokks fólksins kunni að hafa ráðstafað þessu fé til persónulegra þarfa sjálfra sín. Hér er um að ræða tugi milljóna árlega undanfarin ár. Það er auðvitað aðalatriði málsins að upplýsa hvort málum sé svona farið. Sé svo sýnist að um sé að ræða refsiverða háttsemi þessara fyrirsvarsmanna, sem falli undir að teljast auðgunarbrot samkvæmt almennum hegningarlögum,” segir maðurinn sem varað hefur ítrekað við dómstól götunnar en vitnar nú í Gróu á Leiti. Svo vitnað sé í Joseph Welch þegar honum ofbauð ofsóknaræði Joseph R. McCarthy öldungardeildarþingmanns á Bandaríkjaþingi á sjötta áratug síðustu aldar: „Have you no sense of decency, sir? – Hefur þú enga sómatilfinningu herra dómari?“ Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heimir Már Pétursson Flokkur fólksins Styrkir til stjórnmálasamtaka Tengdar fréttir Þegar heiftin nær tökum á hrútakofanum Undanfarnar vikur höfum við orðið vör við hjákátlegt jarm og á köflum hljóð sem minna á væl og öskur út úr hrútakofa biturra manna sem kunna tungu sinni ekki forráð vegna þeirra miklu vonbrigða sem þeir urðu fyrir að afloknum síðustu alþingiskosningum. Þar fór Sjálfstæðisflokkurinn í fyrsta skipti í sögunni undir tuttugu prósent í fylgi, ásamt Framsóknarflokknum sem slefaði ekki átta prósentin, einnig í sögulega litlu fylgi í 108 ára sögu þeirrar gömlu samvinnuhreyfingar. 15. febrúar 2025 08:04 Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Skoðun Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Síbylja í sorginni Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Hækkun hjá Heilsu hf. Nota bene! Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar heiftin nær tökum á hrútakofanum Undanfarnar vikur höfum við orðið vör við hjákátlegt jarm og á köflum hljóð sem minna á væl og öskur út úr hrútakofa biturra manna sem kunna tungu sinni ekki forráð vegna þeirra miklu vonbrigða sem þeir urðu fyrir að afloknum síðustu alþingiskosningum. Þar fór Sjálfstæðisflokkurinn í fyrsta skipti í sögunni undir tuttugu prósent í fylgi, ásamt Framsóknarflokknum sem slefaði ekki átta prósentin, einnig í sögulega litlu fylgi í 108 ára sögu þeirrar gömlu samvinnuhreyfingar. 15. febrúar 2025 08:04
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun