Öllum skerðingum aflétt Atli Ísleifsson skrifar 6. febrúar 2025 12:57 Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Vilhelm Landsvirkjun hefur tilkynnt öllum stórnotendum raforku á suðvesturhluta landsins að skerðingum á afhendingu raforku verði aflétt frá og með morgundeginum 7. febrúar.
Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að ástæðan sé batnandi vatnsbúskapur á Þjórsársvæðinu eftir umhleypingar síðustu vikna. Þá geri langtímaspá ráð fyrir að hiti og úrkoma verði yfir meðallagi næstu vikur og því hverfandi líkur á að grípa þurfi til frekari skerðinga fram til vors. „Landsvirkjun miðar upphaf hvers vatnsárs við 1. október. Staða lóna var með versta móti sl. haust, t.d. var staða Þórisvatns í sögulegu lágmarki, því þótt vætusamt hafi verið á láglendi sl. sumar var þurrt og kalt á hálendinu og innrennsli í lón dræmt. Strax í september var ljóst að grípa þyrfti til skerðinga og hófust þær hjá stórnotendum á suðvesturhluta landsins 24. október sl. Á sama tíma stefndi í skerðingar á norður- og austurhluta landsins undir lok nóvember, en til þeirra skerðinga kom þó aldrei. Hálslón við Kárahnjúka náði sér á strik í nóvember og hið sama má segja um Blöndulón. Sú bætta staða hafði hins vegar ekki áhrif á skerðingar syðra þar sem flutningskerfi raforku gerir Landsvirkjun ekki kleift að færa nægilega raforku milli landshluta. Staðið við alla samninga Rétt er að taka fram, að skerðingar ná aðeins til þeirrar orku sem Landsvirkjun og viðskiptavinir hennar hafa samið um að sé skerðanleg þegar staða miðlunarlóna er lág. Landsvirkjun hefur staðið við alla samninga um afhendingu forgangsorku til stórnotenda og heildsölu, eins og í öll þau tæpu 60 ár sem orkufyrirtæki þjóðarinnar hefur starfað,“ segir í tilkynningunni.
Landsvirkjun Orkumál Vatnsaflsvirkjanir Stóriðja Mest lesið Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ Atvinnulíf Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Sjá meira