Enski boltinn

Gagn­rýnir Durán: „Ekki al­vöru fótboltamaður“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jhon Durán kom til Aston Villa frá Chicago Fire fyrir tveimur árum.
Jhon Durán kom til Aston Villa frá Chicago Fire fyrir tveimur árum. getty/Michael Regan

Jhon Durán hefur verið gagnrýndur fyrir fyrirhuguð félagaskipti hans frá Aston Villa til Al Nassr í Sádi-Arabíu.

Þrátt fyrir að hafa ekki verið fastamaður í byrjunarliði Villa hefur Durán skorað tólf mörk fyrir liðið í vetur.

Hann hefur verið orðaður við ýmis lið en nú virðist líklegast að hann fari til Al Nassr. Þar yrði hann samherji Cristianos Ronaldo.

Durán er aðeins 21 árs og ýmsir hafa furðað sig á því að hann hafi ákveðið að fara til Al Nassr. Meðal þeirra er Simon Jordan, fyrrverandi eigandi Crystal Palace og álitsgjafi hjá talkSPORT.

„Hann er ekki alvöru fótboltamaður, er það? Hann er 21 árs að hefja ferilinn sinn og getur lagt heiminn að fótum sér spilandi fyrir stórt félag í bestu deildinni og hann vill fara til Sádi-Arabíu? Hann er ekki alvöru fótboltamaður,“ sagði Jordan.

„Durán er ungur, 21 árs kólumbískur landsliðsmaður sem býr yfir miklum hæfileikum. Þessi félagaskipti eru ekki drifin áfram af fótboltalegum ástæðum heldur vegna peninga. Og það er allt í lagi en köllum hlutina réttum nöfnum. Allir sem hafa einhvern fótboltametnað, jafnvel leikmaðurinn sjálfur, myndi segja að þetta væru slæm félagaskipti.“

Hinn framherji Villa, Ollie Watkins, hefur einnig verið talsvert í umræðunni eftir að Arsenal gerði tilboð í hann. Villa hafnaði því en búist er við því að Arsenal geri annað og betra tilboð áður en félagaskiptaglugganum verður lokað á mánudaginn.

Villa tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með 4-2 sigri á Celtic á Villa Park í gær. Morgan Rogers skoraði þrennu fyrir Villa og Watkins eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×