Sport

Neymar ætlar sér að koma aftur til Evrópu eftir Santos ævin­týrið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar sló í gegn sem leikmaður Santos á sínum tíma og ætlar nú endurheimta neistann hjá æskufélaginu.
Neymar sló í gegn sem leikmaður Santos á sínum tíma og ætlar nú endurheimta neistann hjá æskufélaginu. Getty/Helio Suenaga

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar ætlar að stoppa stutt heima í Brasilíu en hann hefur gert samning við æskufélag sitt.

Neymar gerði bara sex mánaða samning við Santos en hann ætlar ekki að enda feril sinn þar heldur reyna að koma honum aftur á skrið.

Heimildir ESPN herma að Neymar vilji síðan komast til liðs í einu af fimm bestu deildum Evrópu að þessum sex mánuðum loknum.

Al Hilal og Neymar gerðu á mánudaginn starfslokasamning sex mánuðum áður en samningur leikmannsins átti að renna út. Neymar hafði verið orðaður við bandarísku félögin Inter Miami og Chicago Fire en fljótlega kom í ljós að hann væri á leiðinni aftur til Santos.

Hinn 32 ára gamli framherji ætlar sér að nota tímann hjá Santos til að koma sér aftur í gang eftir meiðslahrjáð ár. Neymar spilaði ekki marga leiki með Al Hilal og spilaði síðast í Evrópu með franska félaginu Paris Saint-Germain.

Neymar verður kynntur formlega til leiks á Pacaembu leikvanginum í Sao Paulo á morgun og hann gæti spilað sinn fyrsta leik á móti Botafogo SP 5. febrúar.

Neymar spilaði með Santos frá 2009 til 2013 en hann skoraði þá 136 mörk í 225 leikjum. Það fór hann síðan til Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×