Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipuriti Atli Ísleifsson skrifar 29. janúar 2025 10:17 Ásgeir Baldurs er forstjóri Arctic Adventures. Aðsend Nokkrar breytingar hafa orðið í stjórnendahópi Arctic Adventures þar sem nýtt skipurit var kynnt í upphafi árs.
Frá þessi segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Birkir Björnsson, sem gegnt hafi starfi framkvæmdastjóra upplýsingatækni og stafrænnar sölu, taki við sem framkvæmdastjóri viðskiptasviðs. Hann muni leiða sölu- og markaðsmál Arctic Adventures auk upplýsingatækni. „Birta Ísólfsdóttir tekur við nýju sviði og verður framkvæmdastjóri áfangastaða. Hún mun sjá um uppbyggingu og rekstur áfangastaða svo sem Kersins, Fjaðrárgljúfurs, Óbyggðasetursins og annarra áfangastaða í rekstri Arctic Adventures og dótturfélaga.. Birta mun auk þess leiða sjálfbærni- og menningarmál. Birta var áður framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs. Byron Conroy verður áfram framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Undir rekstrarsvið heyrir rekstur og framkvæmd ferða, ævintýraferðir og hótelstarfsemi Arctic Adventures. Inga Miskine verður framkvæmdastjóri þjónustu en hún hefur síðustu ár stýrt þjónustuveri og skrifstofu félagsins í Litháen. Ásta María Marinósdóttir er framkvæmdastjóri Special Tours sem Arctic keypti síðasta sumar. Special Tours verður áfram rekið sem sjálfstætt dótturfélag Arctic Adventures. Teitur Þór Ingvarsson er framkvæmdastjóri fjármála hjá Arctic Adventures. Ásgeir Baldurs er forstjóri Arctic Adventures. Auk þessara breytinga á framkvæmdastjórn koma tveir einstaklingar inn í stjórnendahóp Arctic Adventures. Lina Zygele mun taka við sem markaðsstjóri Arctic Adventures og Þóra Matthildur Þórðardóttir mun taka við sem sölustjóri fyrirtækjasviðs Arctic Adventures samhliða núverandi starfi sínu sem sölu- og markaðsstjóri Special Tours,“ segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að skipuritið endurspegli vöxt á síðustu árum með kaupum á öðrum fyrirtækjum í ferðaþjónustu og byggi á nýrri stefnumótun sem sé ætlað að auka skilvirkni og efla félagið til framtíðar.
Vistaskipti Ferðaþjónusta Mest lesið Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Viðskipti erlent Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Viðskipti innlent Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Viðskipti erlent „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Viðskipti innlent Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð Viðskipti innlent „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Atvinnulíf Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Neytendur Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Nói Siríus aftur í innlendri eigu Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Atvinnuleysi 7,1 prósent í febrúar Verðbólga eykst enn Völdu tilboð World Class í útboði sem er aftur í kæruferli Lindex opnar þar sem Next var áður Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrirtæki úr landi Eva Signý og Aníta til starfa hjá Borgarleikhúsinu Bára nýr fjármálastjóri Samherja Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Semja um 148 stúdentaíbúðir við Háskólann í Reykjavík Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Sjá meira