Lífið

Tanja Ýr eignaðist dreng

Samúel Karl Ólason skrifar
Tanja Ýr, Ryan og drengurinn.
Tanja Ýr, Ryan og drengurinn. Instagram

Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir og breski hermaðurinn Ryan Amor hafa eignast þeirra fyrsta barn. Tanja Ýr fæddi dreng þann 23. janúar og segir að hún og Ryan gætu ekki verið heppnari.

Tanja Ýr, sem er einn af fyrstu áhrifavöldum Íslands, opinberaði drenginn á Instagram í kvöld.

Tanja og Ryan byrjuðu saman í byrjun árs 2022 og búa í úthverfi í Manchester í Englandi. Hún flutti til Bretlands í byrjun árs 2022 til að koma vörumerki sínu Glamista Hair betur fyrir á alþjóðlegum markaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.