Handbolti

Gætið ykkar: Engir bræður en einn heitur frá Benidorm

Sindri Sverrisson skrifar
Nicolás Bono er einn af burðarásum í sóknarleik Argentínu.
Nicolás Bono er einn af burðarásum í sóknarleik Argentínu. Getty/Luka Stanzl

Það er líklega ekki margt sem ber að varast fyrir íslenska landsliðið í dag, gegn slöku liði Argentínu. Ísland verður að vinna leikinn en þarf svo að treysta á að Grænhöfðaeyjar taki stig gegn Egyptalandi, eða að Slóvenía taki stig gegn Króatíu.

Þrír síðustu leikirnir í milliriðli Íslands eru spilaðir í Zagreb í dag, allir á sama stað, og eiga Ísland og Argentína fyrsta leik klukkan 14:30. Grænhöfðaeyjar og Egyptaland mætast klukkan 17 og loks Króatía og Slóvenía klukkan 19:30. Líklega ræðst það því ekki fyrr en klukkan nálgast níu í kvöld hvort að Ísland kemst í 8-liða úrslit mótsins, en líklegast er að Króatía og Egyptaland vinni sína leiki og taki tvö efstu sætin.

Argentínumenn hafa unnið tvo leiki á mótinu til þessa, gegn Barein og Grænhöfðaeyjum, en steinlegið gegn sterkari mótherjum. Þeir töpuðu 34-23 gegn Slóveníu, 33-18 gegn KRóatíu og 39-25 gegn Egyptalandi.

Þegar Argentínu hefur tekist að stríða Evrópuþjóðum á HM, eða hreinlega vinna þær eins og í stórsigrinum á Norður-Makedónínu fyrir tveimur árum, hafa Simonet-bræður verið áberandi. Þeir Diego, sem orðinn er 35 ára, og yngri bróðir hans Pablo eru hins vegar ekki með á mótinu í ár og það er mikið áfall fyrir argentínska liðið.

Liðsfélagi Orra og hornamaður Benidorm

Af lykilmönnum í liði Argentínu núna mætti því kannski helst nefna miðjumanninn Pedro Martínez Cami, sem er liðsfélagi Orra Freys Þorkelssonar hjá Sporting Lissabon. Þeir Nicolás Bono, sem leikur með næstneðsta liði Frakklands, Istres, hafa skorað 13 mörk hvor í fimm leikjum á mótinu til þessa en hægri hornamaðurinn Ramiro Martínez, sem spilar með Benidorm á Spáni, er langmarkahæstur Argentínu með 22 mörk.

Markvörðurinn Leonel Maciel er einnig titlaður sem einn af lykilmönnum Argentínu en hann stendur Viktori Gísla Hallgrímssyni hins vegar langt að baki og er aðeins með 25% markvörslu á mótinu til þessa.

Eins og fyrr segir verður Ísland að vinna Argentínu í dag til að eiga enn möguleika á að komast í 8-liða úrslit. Engu máli skiptir hve stóran sigur Ísland vinnur. Liðið þarf bara að vinna og treysta á að Egyptum og Króötum takist ekki báðum að vinna sinn leik síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×